Gagnasérfræðingur
Blue Lagoon Skincare leitar að metnaðarfullum gagnasérfræðingi sem hefur brennandi áhuga á greiningu og miðlun viðskiptavinagagna. Gagnasérfræðingur ber ábyrgð á að gögnum sé miðlað á skilvirkan hátt til hagaðila.
Starfið felur í sér samvinnu við starfsfólk úr öllum deildum fyrirtækisins.
Blue Lagoon Skincare starfar á alþjóðlegum snyrtivörumarkaði og annast þróun, framleiðslu, markaðssetningu og sölu á húðvörum undir vörumerkinu Blue Lagoon Skincare. Húðvörurnar komu fyrst á markað árið 1995, hafa hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga og eru B Corp vottaðar. Starfsemi fyrirtækisins felur í sér rekstur fjögurra sérverslana auk heildsölu á Íslandi, og rekstur dótturfélaga í Bandaríkjunum, Bretlandi og Hollandi.
Helstu verkefni:
- Ábyrgð á betri nýtingu viðskiptavinagagna.
- Innleiðing vinnulags og tækni með það að markmiði að hafa góða yfirsýn yfir helstu lykiltölur.
- Uppsetning og umsjón með Power BI mælaborðum.
- Virk þátttaka í lykil- og umbótaverkefnum.
- Miðlun á niðurstöðum og greiningu gagna til stjórnenda og hagaðila.
- Viðskipta- og sölugreiningar ásamt rýni á helstu söluleiðum.
- Samþætting gagna og þátttaka í áætlanagerð.
- Þátttaka í þróun verðstýringar og eftirfylgni.
- Viðhald og eftirfylgni á leiðum til bestunar í mismunandi kerfum.
- Þátttaka í verkefnum sem snúa að vöru- og viðskiptaþróun.
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Brennandi áhugi á umbótastarfi.
- Reynsla af greiningu og framsetningu tölulegra gagna.
- Þekking á fjárhagskerfinu Business Central er kostur.
- Nákvæm vinnubrögð og lausnamiðað hugarfar.
- Brennandi áhugi á að gera gögn áhugaverð, skýr og læsileg fyrir ólíka hópa.
- Mjög gott vald á ensku og íslensku.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, teymisvinnu og sjálfstæð vinnubrögð.
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar.
Viðkomandi mun hafa starfsstöð Urriðaholti í Garðabæ.
Í boði er starf á lifandi og skemmtilegum vinnustað sem býður upp á fjölbreyttar og krefjandi áskoranir. Einnig eru ýmis fríðindi í boði, eins og heilsuræktarstyrkur, þátttaka í einu öflugasta starfsmannafélagi landsins ásamt ýmsum öðrum fríðindum sem starfsfólki Bláa Lónsins bjóðast.