

Deildarstjóri faghópa á barna- og unglingageðdeild
Við leitum að öflugum stjórnanda með menntun á sviði iðjuþjálfunar, sálfræði, félagsráðgjafar eða þroskaþjálfafræða til að leiða og efla starfsemi barna- og unglingageðdeildar. Í kjarna starfsins er stuðningur og aðhald við þverfaglega liðsheild þar sem þarfir þjónustuþega, gagnreyndar aðferðir og öryggi eru í forgrunni. Starfið er unnið í nánu samstarfi við deildarstjóra hjúkrunar, yfirlækni, forstöðuhjúkrunarfræðing og annað samstarfsfólk. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur kvenna- og barnaþjónustu.
Barna- og unglingageðdeild samanstendur af legudeild, dagdeild og göngudeild. Þar er veitt sérhæfð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda og fjölskyldur þeirra. Á barna- og unglingageðdeild starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu, faglega örvandi og líflegu starfsumhverfi þar sem kapp er lagt á menningu sálræns öryggis. Unnið er í þverfaglegum teymum og mikil samvinna höfð við fagaðila í nærumhverfi. Þjónustan er í stöðugri framþróun. Áhersla er lögð á skilvirkni og nýsköpun og sjónarmið þjónustuþega eru nýtt til umbóta.
Deildarstjóri faghópa er leiðtogi hóps fagfólks með fjölbreyttan þekkingargrunn og hefur þríþætta ábyrgð: faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 10. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.
- Fagleg ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu og skipulagi starfseminnar, stuðlar að fjölfaglegri þekkingarþróun og umbótastarfi, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildanna
- Er virkur þátttakandi í samstarfi stjórnenda kvenna- og barnaþjónustu
- Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
- Er í virku samtali við samstarfsstofnanir og helstu hagaðila
- Íslenskt starfsleyfi sálfræðings, þroskaþjálfa, félagsráðgjafa eða iðjuþjálfa
- Haldbær starfsreynsla sem klínískur heilbrigðisstarfsmaður
- Farsæl reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
- Viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi
- Leiðtogahæfni, geta til að byggja upp og leiða fjölfaglegan hóp
- Þekking og reynsla af gæða- og umbótastarfi, geta til að leiða breytingar
- Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
- Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
- Lausnamiðuð nálgun og geta til að vinna undir álagi
- Góð íslensku- og enskukunnátta, færni til að tjá sig í mæltu og rituðu máli
- Góð tölvukunnátta, geta og vilji til að læra nýjungar
- Hreint sakavottorð
Icelandic
English















































