

Sálfræðingur/meðferðaraðili í Geðheilsuteymi HSU
Við Geðheilsuteymi HSU starfar fjölbreyttur þverfaglegur hópur fagaðila sem leggur áherslu á góða samvinnu fagstétta með hag skjólstæðingsins að leiðarljósi. Teymið vinnur eftir batahugmyndafræði þar sem veitt er einstaklingsmiðuð þjónusta í einstaklings- og hópaúrræðum.
Við leitum að sálfræðingi eða annarri heilbrigðisstarfsstétt með meðferðarmenntun í teymið okkar, í 50-100% starf.Viðkomandi þarf að geta hafið störf í ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.
-
Viðtöl á starfsstöð og í gegnum fjarfundarbúnað
-
Meðferð einstaklinga með geðrænan vanda
-
Beiting gagnreyndra aðferða, fræðsla og ráðgjöf
-
Skipulagning og veiting þjónustu sem þörf er á hverju sinni
-
Vinna í þverfaglegu teymi
-
Námskeiðshald og fræðsla til þjónustunotenda
-
Þátttaka í þróunarstarfi
-
Samstarf við aðrar stofnanir og úrræði
-
Starfsleyfi frá landlækni er skilyrði
-
A.m.k. tveggja ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg
-
Þekking og reynsla af geðþjónustu og veitingu gagnreyndra aðferða er skilyrði
-
Þekking og reynsla af áfallavinnu kostur
-
Hæfni og áhugi á teymis- og verkefnavinnu
-
Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
-
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
-
Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
-
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
-
Góð almenn tölvukunnátta
Icelandic
English
