Reykjalundur
Reykjalundur
Reykjalundur

Sviðsstjóri ráðgjafar

Viltu leiða metnaðarfullt starf endurhæfingar á Reykjalundi.

Laus er til umsóknar staða sviðsstjóra ráðgjafar á Reykjalundi. Innan fagsviðsins starfa m.a. félagsráðgjafar, næringarfræðingar, sálfræðingar og veitt þjónusta talmeinafræðinga, alls um 20 manns.

Sviðsstjóri ráðgjafar gegnir leiðandi hlutverki í þverfaglegri endurhæfingu í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra hjúkrunar, um fagleg málefni og framþróun. Sviðsstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri einingar sinnar. Hann leiðir einnig skipulagningu starfa innan meðferðarteyma og þvert á meðferðarteymi þar sem það á við.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Verkefnastjórnun.
  • Leiða, þróa og stefnumóta starfsemi ráðgjafar.
  • Tryggja gæði og samræmi þjónustu.
  • Greina tækifæri til umbóta.
  • Fylgja eftir árangri lykilmælikvarða og þjónustuferla.
  • Ber ábyrgð á fjármálum og rekstri einingar.
  • Situr í stýrihópi stjórnenda Reykjalundar.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólanám sem nýtist í starfi.
  • Framhaldsnám í stjórnun, t.d. verkefnastjórn er kostur.
  • Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
  • Þekking og reynsla af stjórnun og rekstri.
  • Frumkvæði, leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afrit af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað.

Upplýsingar um starfið veita Ólöf Árnadóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri [email protected]

Upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is

Advertisement published21. April 2026
Application deadline4. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Reykjalundur 125400, 270 Mosfellsbær
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags