Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri eftirlits hjá Barnavernd Reykjavíkur

Barnavernd Reykjavíkur auglýsir eftir skipulögðum og metnaðarfullum einstakling í starf teymisstjóra eftirlits. Barnavernd Reykjavíkur ber ábyrgð á málum sem unnin eru á grundvelli barnaverndarlaga og heyrir undir velferðarsvið Reykjavíkurborgar.

Um nýtt starf er að ræða og er starfshlutfall 100%.

Meðal helstu verkefna teymisstjóra eftirlits er ábyrgð á skipulagi umgengni fyrir tímabundnar vistanir, skipulag óboðaðs eftirlits í samstarfi við ráðgjafa, deildarstjóra og foreldra. Teymisstjóri skipuleggur jafnframt vaktir starfsmanna eftirlits, útdeilir verkefnum og hefur yfirsýn og umsjón með bókunum í eftirlitsrými. Starf teymisstjóra heyrir undir skrifstofustjóra.

Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og velferðarstefnu er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á skipulagningu óboðaðs eftirlits.
  • Ábyrgð á skipulagningu umgengni undir eftirliti í samráði við önnur teymi.
  • Ráðningar og mönnun eftirlitsteymis og vaktaskipulag.
  • Umsjón með eftirlitsrými og yfirsýn bókana í rýmið.
  • Útbúa umsagnir skv. beiðni Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála vegna veitingu á 84. gr. leyfum.
  • Ábyrgð á innra eftirliti vegna barna í vistun og fóstri í samstarfi við framkvæmdastjórn.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða önnur sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla af barnaverndarstarfi.
  • Þekking og reynsla af vinnu með börnum og fjölskyldum.
  • Framúrskarandi lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Íslenskukunnátta C1 og enskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Ökuréttindi B
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuviku í fullu starfi
  • Heilsustyrk
  • Menningarkort og frítt í sund
  • Samgöngusamning
Advertisement published15. April 2026
Application deadline28. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Ármúli 4, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Working under pressure
Professions
Job Tags