Fangelsismálastofnun ríkisins
Fangelsismálastofnun ríkisins

Félagsráðgjafi - Meðferðarsvið Fangelsismálastofnunar

Langar þig að starfa þar sem þú hefur raunveruleg áhrif á fólk og samfélagið í heild?

Fangelsismálastofnun leitar að framsýnum og lausnarmiðuðum félagsráðgjafa í öflugt og faglegt teymi á meðferðarsviði.

Á sviðinu starfa félagsráðgjafar, sálfræðingar og vímuefnaráðgjafar í nánu samstarfi við annað starfsfólk fangelsa og heilbrigðisstarfsfólk.

Lögð er áhersla á þverfaglega teymisvinnu, fagmennsku og mannlega nálgun í endurhæfingu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita félagslega ráðgjöf og stuðning

  • Halda einstaklingsviðtöl og hópafræðslu

  • Framkvæma innkomumöt og móta einstaklingsáætlanir

  • Styðja við afplánunarferli og endurkomu í samfélagið

  • Vinna í samstarfi við aðrar stofnanir og þjónustuaðila

  • Veita fræðslu og handleiðslu til starfsfólks

  • Taka þátt í þróunar- og umbótaverkefnum, bæði innlendum og erlendum

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi félagsráðgjafa

  • Þekking og reynsla af starfi sem félagsráðgjafi er æskilegt

  • Þekking og reynsla á sviði réttarfélagsráðgjafar er kostur

  • Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfileikar og lausnamiðuð nálgun er mikilvæg

  • Góð tölvufærni

  • Reynsla af áhugahvetjandi samtalstækni (MI)

  • Þekking á áhættumati, hugrænni atferlismeðferð, hvatningsviðtalstækni (MI) og áfallamiðaðri nálgun er æskileg

  • Ástríða fyrir þróun úrræða sem styðja við endurhæfingu og samfélagslega aðlögun skjólstæðinga

  • Þekking eða reynsla af vinnu með fólki með fjölþættan vanda er mikilvæg

  • Góð samskiptafærni og teymisvinna

  • Góð íslensku og enskukunnátta

Advertisement published7. April 2026
Application deadline21. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnes
Type of work
Professions
Job Tags