Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Félagsráðgjafi í barnateymi Velferðarþjónustu Árborgar

Leitað er eftir metnaðarfullum og áhugasömum félagsráðgjafa til starfa í barnateymi Velferðarþjónustu Árborgar. Um er að ræða spennandi tækifæri til að taka þátt í þróun og uppbyggingu þjónustu við börn og fjölskyldur í ört vaxandi sveitarfélaginu Árborg þar sem búa um 13 þúsund íbúar.

Hjá Velferðarþjónustu Árborgar er lögð rík áhersla á snemmtækan stuðning, samþætta þjónustu og farsæld barna. Starfið byggir á þverfaglegu samstarfi þar sem unnið er náið með fagfólki á sviði velferðar-, skóla- og frístundaþjónustu með það að markmiði að styrkja stöðu barna og fjölskyldna í samfélaginu.

Í starfinu felst meðal annars að veita ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu til forráðamanna, vinna með fjölskyldum og taka þátt í þróun og framkvæmd þjónustu í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021.

Velferðarþjónusta Árborgar er framsækinn vinnustaður þar sem unnið er í nánu samstarfi við öflugan hóp fagfólks. Þar gefst tækifæri til að taka virkan þátt í þróun þjónustu og vinna að mikilvægum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á líf barna og fjölskyldna.

Um er að ræða 100% ótímabundið starf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppeldis- og foreldraráðgjöf, veitt í viðtölum og á heimilum fólks  
  • Ráðgjöf og stuðningur við fjölskyldur  
  • Málastjórn samþættrar þjónustu og ráðgjöf samkvæmt farsældarlögum  
  • Mat á þörf fyrir þjónustu og úrræði, ásamt gerð þjónustu- og stuðningsáætlana  
  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan og utan sveitarfélags  
  • Reglubundin eftirfylgd og mat á árangri þjónustu  
  • Móttaka, greining og úrvinnsla erinda og umsókna  
  • Skýrslugerð og skráning 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistarapróf í félagsráðgjöf  
  • Þekking og reynsla af vinnu með barnafjölskyldum innan opinberrar þjónustu er mikill kostur 
  • Góð samskiptahæfni, frumkvæði og hæfni til sjálfstæðrar vinnu  
  • Reynsla af teymisvinnu og samþættri þjónustu er mikill kostur  
  • Þekking á lögum og reglugerðum sem tengjast starfssviði velferðarþjónustu  
  • Færni í skráningu, greiningarvinnu og tölvukerfum opinberrar stjórnsýslu  
Advertisement published10. April 2026
Application deadline24. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags