

Kennsluráðgjafi í fjölmenningu til skólaþjónustu
Skólaþjónusta Árborgar auglýsir lausa stöðu kennsluráðgjafa í málefnum barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn til að ganga til liðs við samheldinn og þverfaglegan hóp starfsfólks. Skólaþjónustan er hluti af fjölskyldusviði Árborgar þar sem mikil áhersla er lögð á þverfaglegt samstarf skóla-, velferðar- og frístundaþjónustu.
Skólaþjónustan sinnir margþættum verkefnum með það að leiðarljósi að mæta fjölbreyttum þörfum barna, foreldra og starfsfólks skóla og frístundar. Mikil áhersla er lögð á snemmtækan stuðning, lausnaleit, þróun úrræða, öfluga skólaþróun, fræðslu og námskeið bæði fyrir börn, foreldra og starfsfólk skóla og frístundar.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13000 íbúar þar af um 2300 börn í leik- og grunnskólum.
- ráðgjöf til starfsfólks, skólastjórnenda og foreldra í leik- og grunnskólum vegna nemenda með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn t.d. varðandi móttöku, stöðumat og hæfniramma
- ráðgjöf sem tengist kennslu fjöltyngdra nemenda, starfsháttum og starfstengdri leiðsögn
- mat á stöðu fjöltyngdra nemenda á íslensku og jafnvel móðurmáli
- eftirfylgd og mat á stuðningsþörf nemenda eftir greiningar eða skimanir
- þverfaglegt samstarf um málefni nemenda í leik- og grunnskólum
- fræðsla og námskeið fyrir foreldra og starfsfólk leik- og grunnskóla
- þverfaglegt samstarf á fjölskyldusviði
- háskólapróf sem nýtist í starfi er skilyrði,
- kennsluréttindi eru skilyrði
- framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg
- þekking og reynsla af ráðgjafarstörfum v/fjöltyngdra barna er æskileg
- reynsla af starfi úr leik- og/eða grunnskólum er æskileg
- reynsla af teymisvinnu og þverfaglegu samstarfi er æskileg
- lipurð og góð færni í mannlegum samskiptum
- frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og góð skipulagshæfni
- góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti æskileg
Sveigjanlegur vinnutími, full vinnustytting, góður starfsandi, handleiðsla
Icelandic










