
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ
Hádegishöfði er þriggja deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum eins til sex ára. Hádegishöfði rúmar um 60 nemendur samtímis. Leikskólinn starfar í anda hugmyndafræði Reggio Emilia. Lögð er áhersla á lýðræði í vinnubrögðum, takmarkalaust traust auk virðingar fyrir nemendum og getu þeirra til að afla sér þekkingar og reynslu á eigin forsendum. Á Hádegishöfða er einnig sérstök áhersla á umhverfismennt og skapandi starf. Hádegishöfði flaggar Grænfána Landverndar. Megináherslur í daglegu starfi eru að efla sjálfstæði, gleði og sköpun nemenda sem og virðingu þeirra fyrir sjálfum sér og öðrum.

Lausar stöður leikskólakennara
Hádegishöfði auglýsir lausa til umsóknar stöðu leikskólakennara. Hlutastarf kemur einnig til greina. Starfið er laust nú þegar.
Hádegishöfði er þriggja deilda leikskóli sem rekinn er í nýju og glæsilegu húsnæði að Fellabrún 9 í Fellabæ. Á Hádegishöfða er unnið að innleiðingu jákvæðs aga og starfar leikskólinn í anda hugmyndafræði Reggio Emilia. Hádegishöfði er skóli á grænni grein og flaggar grænfána Landverndar.
Ef ekki fæst kennari verður skoðað að ráða aðila með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinanda.
Næsti yfirmaður er leikskólastjóri.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur undir stjórn deildarstjóra að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi á að vinna með börnum
- Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
Heilsueflingarstyrkur
Advertisement published10. April 2026
Application deadline24. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Fellabrún 9, Fellabæ
Type of work
Skills
ProactiveHonestyCreativityPositivityAmbitionConscientiousIndependencePunctualFlexibilityTeam work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Hraunmeistari | Lava Master Part-Time
Lava Show

Laus staða íþróttakennara
Vesturbyggð

Kennari - Patreksskóli
Vesturbyggð

Umsjónarkennari - Patreksskóli
Vesturbyggð

List- og verkgreinakennari, með áherslu á sjónlistir
Vesturbyggð

List- og verkgreinakennari, með áherslu á textílmennt
Vesturbyggð

List- og verkgreinakennari, með áherslu á hönnnun og smíði
Vesturbyggð

Íþróttafræðingur/íþróttakennari
Leikskólinn Jötunheimar

Leikskólakennari óskast í frábæran skóla
Vinagarður leikskóli

Árbær á Selfossi - Skólaárið 2026-2027
Hjallastefnan

Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær