Vesturbyggð
Vesturbyggð
Vesturbyggð

Laus staða íþróttakennara

Leitað er að metn­að­ar­fullum, sjálf­stæðum og dríf­andi starfs­manni með mikla þekk­ingu og áhuga á skóla­starfi. Um er að ræða 100% starf. Starfið hefur fasta starfsstöð á Patreksfirði en felur jafnframt í sér möguleika á kennslu við tvo aðra grunnskóla innan Vesturbyggðar.

Í grunnskólum Vesturbyggðar er gróskumikið skólastarf en meðal áherslna skólanna er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi. Íþróttalíf er gott og fjölbreytt og margir möguleikar fyrir öflugan íþróttakennara. Íþróttaaðstaða er mjög góð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar gefur Jónína Helga Sigurðard. Berg, skólastjóri Patreksskóla. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið [email protected]. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast almenna íþrótta- og sundkennslu fyrir skólana
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólanna
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólunum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Sérhæfð hæfni í kennslu íþrótta
  • Hefur ánægju af að starfa með börnum og unglingum
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Getur tileinkað sér skólastefnu grunskólanna, s.s. Uppeldi til ábyrgðar, Heillaspor o.fl
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Faglegur metnaður
Advertisement published13. April 2026
Application deadline4. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Aðalstræti 53, 450 Patreksfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Teacher
Professions
Job Tags