

List- og verkgreinakennari, með áherslu á sjónlistir
Leitað er að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmanni með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi. Um er að ræða 100% starf. Starfið hefur fasta starfsstöð á Patreksfirði en felur jafnframt í sér möguleika á kennslu við annan grunnskóla í Vesturbyggð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.
Frekari upplýsingar gefur Jónína Helga Sigurðard. Berg, skólastjóri Patreksskóla. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið [email protected]. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum á grunnskólastigi
-
Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
- Faglegur metnaður
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
-
Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
-
Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
-
Getur tileinkað sér skólastefnu Patreksskóla s.s. Uppeldi til ábyrgðar, Heillaspor ofl.
Icelandic










