

Hraunmeistari | Lava Master Part-Time
- Hefurðu ástríðu fyrir eldfjöllum, jarðfræði og íslenskri náttúru?
- Ertu náttúrulegur sögumaður sem elskar að fræða og heilla fólk?
- Viltu starfa hjá vaxandi fyrirtæki með svalasta starfstitil sögunnar?
Lava Show endurskapar eldgos með því að hita alvöru hraun upp í 1100°C og hella því inn í sýningarsal fullan af fólki til að upplifa, læra og njóta. Sýningin hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir framúrskarandi upplifun, nýsköpun og fræðslu um íslenska náttúru.
Við leitum að hraunmeistara/sýningarstjóra í hlutastarf með möguleika á fullu starfi. Starfið snýst um að fara fram úr væntingum gesta, skapa ógleymanlega upplifun, miðla þekkingu og leiða gesti í allan sannleika um eldfjallaeyjuna okkar fögru.
Við leitum að einstaklingi sem:
- hefur brennandi áhuga á jarðfræði
- nýtur þess að segja sögur og fræða
- hefur sterka þjónustulund og jákvæða nærveru
- vill skapa upplifun sem fólk talar um löngu eftir að það er farið
Skemmtilegt, krefjandi og gefandi starf hjá íslensku nýsköpunarfyrirtæki í fremstu röð.
--------------------------------------
- Do you have a passion for volcanoes, geology, and Icelandic nature?
- Are you a storyteller who loves to educate and captivate an audience?
- Do you want the coolest job title ever at a growing world-class company?
Lava Show recreates a volcanic eruption by superheating real lava to 1100°C and pouring it into a showroom full of people for them to experience, learn, and enjoy from the safety of their seats. The show has received numerous international awards for exceptional edutainment value and innovation.
We are looking for a Lava Master / Show Host for a part-time position, with the possibility of full-time work in the summer. The role is all about exceeding guest expectations, creating unforgettable experiences, knowledge sharing, and guiding guests through the raw truth of our volcanic island.
We are looking for someone who:
- has a strong passion for geology
- enjoys storytelling and educating others
- has a strong service mindset and positive presence
- wants to create experiences people will talk about long after they leave
A fun, challenging, and rewarding role for an innovative and growing Icelandic company in the travel sector.
- Stýra sýningum, taka á móti gestum, kynna og leiða upplifunina
- Læra að "leika sér með hraunið" á ábyrgan og öruggan hátt
- Svara fyrirspurnum og veita faglega og hlýja þjónustu
- Selja miða og minjagripi og halda aðstöðu snyrtilegri
- Vinna með teyminu að frábærri upplifun og góðu vinnuumhverfi
- Taka þátt í að byggja upp og bæta verkferla og gæði þjónustunnar
- Sinna daglegum verkefnum og tryggja ánægju gesta
--------------------------------------
- Host the show, welcome guests, introduce and guide the experience
- Learn to “play with lava” safely and responsibly
- Answer questions and provide professional, warm service
- Sell tickets, drinks and maintain a clean environment
- Collaborate with the team to create a positive workplace environment
- Contribute to developing and improving procedures and service quality
- Handle daily tasks and ensure guest satisfaction
- Framúrskarandi enskukunnátta (íslenskukunnátta er einnig plús)
- Áhugi (og menntun er kostur) á jarðvísindum og íslenskri eldvirkni
- Hæfni til að tala fyrir framan fólk, frásagnargleði og miðlun upplýsinga sem heldur vel athygli áhorfenda (skemmtimennt)
- Rík þjónustulund og metnaður fyrir framúrskarandi upplifun gesta
- Jákvætt viðhorf og að hafa gaman að fólki er lykilatriði
- Lausnamiðuð hugsun og geta til að takast á við óvæntar uppákomur
- Reynsla af leiðsögustörfum, kennslu, eða leiklist er bónus
--------------------------------------
- Excellent English skills (Icelandic skills are not required but a plus)
- Interest in geology and Icelandic volcanism (formal education is a plus)
- Strong storytelling skills, being comfortable speaking in front of a crowd, engaging communication (edutainment)
- Strong service mindset and drive to deliver outstanding guest experiences
- Positive attitude and genuine enjoyment of working with people
- Solution-oriented mindset and ability to handle unexpected situations
- Experience in guiding, teaching, or performing of any kind is a plus
English
Icelandic










