

Iðjuþjálfi á Landakoti
Við óskum eftir iðjuþjálfa í okkar góða hóp á Landakoti sem saman stendur af iðjuþjálfum og aðstoðarmönnum. Óskað er eftir iðjuþjálfa sem sinnir endurhæfingu með sérstaka áherslu á handarþjálfun. Markmið endurhæfingar er að gera einstaklinginn eins sjálfbjarga líkamlega, andlega og félagslega og geta hans leyfir. Leiðir að þeim markmiðum eru margar og eru unnar í öflugri þverfaglegri teymisvinnu. Miklir möguleikar á sérhæfingu meðal annars handaþjálfun svo reymslumiklir sem og reynsluminni iðjuþjálfar eru hvattir til að sækja um.
Í iðjuþjálfun á Landspítala starfa um 30 iðjuþjálfar og aðstoðarmenn sem dreifast víða um spítalann. Störf okkar eru fjölbreytt og gefst starfsfólki tækifæri á að öðlast víðtæka þekkingu innan fagsins. Mikið faglegt starf er unnið og eru ýmsir möguleikar á endurmenntun. Við leggjum mikla áherslu á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veita góða aðlögun. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Svanborgu Guðmundsdóttur yfiriðjuþjálfa á Landakoti til að fá nánari upplýsingar.
Um er að ræða framtíðarstarf þar sem unnið er í dagvinnu og sveigjanlegur vinnutími í boði. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi. Vinnuvika í fullu starfi er 36 klukkustundir.
- Ábyrgð á þeirri iðjuþjálfun sem hann veitir og mat á árangri meðferðar
- Umsjón yfir handarþjálfun
- Skráning og skýrslugerð
- Fræðsla og skipulagning starfa aðstoðarfólks iðjuþjálfa á deild/um
- Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í þverfaglegu samstarfi/teymi
- Þátttaka í fagþróun
- Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta
Icelandic






































