

Kennslustjóri sérnáms í skurðlækningum
Laust er til umsóknar hlutastarf kennslustjóra sérnáms í skurðlækningum við Landspítala frá 1. júní 2026 eða skv. samkomulagi. Kennslustjóri er leiðtogi og fyrirmynd og ber ábyrgð á innihaldi, gæðum og framkvæmd sérnáms í skurðlækningum auk víðtækrar, leiðandi aðkomu að mannauðsmálum sérnámslækna. Meginhlutverk er að tryggja öflugt sérnám og stuðla þannig að árangursríkum lækningum, góðri þjónustu og öryggi sjúklinga ásamt viðeigandi mönnun greinarinnar til framtíðar. Þá gegnir kennslustjóri einnig mikilvægu hlutverki í uppbyggingu og framkvæmd vísindastarfa og umbótavinnu.
Hjá skurðlækningum starfa tveir kennslustjórar hverju sinni, formaður og varaformaður kennsluráðs skurðlækinga. Kennslustjóri vinnur í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðulækna, yfirlækna, umsjónarsérnámslækna og annað samstarfsfólk. Kennslustjóri hefur aðgang að skrifstofuaðstöðu innan skurðlækninga og skrifstofu sérnáms og starfar náið með skrifstofustjóra og verkefnastjórum. Næsti yfirmaður er yfirlæknir sérnáms. Lesa má nánar um hlutverk kennslustjóra í .
Leitað er eftir sérfræðilækni í skurðlækningum með víðtæka reynslu og hæfni til að vera í forystu sérnámsins. Um er að ræða 15% starfshlutfall.
Icelandic
English
































