Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Menntastoðir hjá Mími - fjarnám

Um Menntastoðir

Menntastoðir er vinsæl námsbraut sem hefur veitt fjölda fólks ný tækifæri í námi og er góður undirbúningur fyrir áframhaldandi nám. Eftir útskrift úr Menntastoðum er hægt að sækja um í undirbúningsdeildum háskólanna; Bifröst, HR og Keili eða starfs-, iðn- og tækninám.

Menntastoðir eru kenndar samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og eru 60 einingar á 2.þrepi íslenska hæfnirammans um menntun. Hægt er að meta námið til framhaldsskólaeininga.

Boðið er upp á að taka Menntastoðir í stað- eða fjarnámi.

Fjarnám

Nemendur ljúka námi á tveimur önnum. Námið er fimm lotur og eru kenndar tvær námsgreinar samhliða í hverri lotu. Að auki eru tvær námsgreinar sem hvor um sig eru kenndar á einni önn. Námstækni er kennd á fyrri önn og Yndislestur á þeirri seinni.

Lokapróf (í stærðfræði, íslensku og ensku) eru tekin í Mími eða á öðrum stað sem samið er um við verkefnastjóra.

Námsgreinar

Menntastoðir eru kenndar samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og eru 60 einingar á 2.þrepi íslenska hæfnirammans.

Smellið á námsgreinar til að fá nánari upplýsingar.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Hafðu samband við þitt stéttarfélag eða þinn ráðgjafa og kannaðu málið. 

Kannaðu málið!

Hefst
20. ágúst 2025
Tegund
Fjarnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar