

Japanska stig 1 og 2
日本語を話そう Tölum japönsku! Námskeiðið er ætlað byrjendum í japönsku. Þjálfun í framburði og orðaforði byggður upp með einföldum textum og samtölum.
Japanska stig 1
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa enga eða litla þekkingu í japönsku. Hnitmiðaðir tímar sem gefa góða innsýn í japanska tungu, lífsstíl og menningu.
Japönsku hljóðstafrófin „Hiragana“ og „Katakana“ eru kynnt og farið er yfir undirstöðuatriði í málfræði.
Markmið námskeiðsins er að nemendur geti lesið japönsku stafrófin (Hiragana og Katakana), átt í einföldum orðaskiptum við mismunandi aðstæður.
Dæmi af efni sem nemendur læra í námskeiðinu:
- Lestur og skrift af Hiragana og Katakana
- Kveðjur, dagleg orðasambönd
- Sjálfskynning (atvinna, þjóðerni o.s.frv.)
Japanska stig 2
Námskeiðið er framhald af japönsku 1, og ætlað fólki sem er með fyrsta grunnkunnáttu í japönsku (Hiragana, Katakana stafrófin og málfrærði).
Markmið námskeiðsins er að nemendur geti lesið og skrifað japönsku stafrófin (Hiragana og Katakana), talað um sjálfan sig og tjáð sig átt í einföldum orðaskiptum við mismunandi aðstæður.
Dæmi af efni sem nemendur læra í námskeiðinu:
- Málfræði (setningargerð, smáorð/particles s. frv.)
- Tala um uppáhaldsmatinn þinn
- Tala við vin um hvert á að fara til að borða