

Vöruhúsaþjónusta á Patreksfirði
Eimskip leitar að þjónustulipru og drífandi starfsfólki í vöruhúsaþjónustu félagsins á Patreksfirði. Um er að ræða framtíðarstarf í dagvinnu. Við leitum að einstaklingi sem endurspeglar gildi Eimskips: liðsheild, framsækni, áreiðanleiki og virðing.
Hjá Eimskip Patreksfirði starfar öflugur og samhentur hópur fólks í fjölbreyttum störfum sem snúa að þjónustu og dreifingu á vörum. Mikil áhersla er lögð á þjálfun og öryggismál hjá Eimskip og nýtur starfsfólk okkar góðs af stöðugri fræðslu og stuðningi, sem tryggir að öll séu vel undirbúin til að takast á við fjölbreytt verkefni og áskoranir.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um. Eimskip leggur áherslu á jafnrétti, heilsu og vellíðan starfsfólks þar sem markvisst er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun að jafnri stöðu óháð kyni og leitast eftir því að hafa vinnuumhverfið sem öruggast og heilsusamlegast.
- Vöruhúsaþjónusta og afgreiðsla
- Samskipti við viðskiptavini
- Losun og lestun flutningabíla
- Önnur tilfallandi verkefni
- Lyftarapróf (J) er æskilegt
- Almenn tölvukunnátta
- Góð færni í íslensku- og/eða ensku
- Framúrskarandi þjónustulund og jákvæðni
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Fjölbreytt verkefni og góður starfsandi í samhentu teymi
- Aðgangur að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur orlofshús um allt land
- Heilsu- og hamingjupakki sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira.
Íslenska
Enska










