
Lýsi
Hjá Lýsi starfar öflugur og fjölbreyttur hópur fólks. Er það markmið Lýsis að gera starfsfólk þátttakendur í velferð fyrirtækisins og skapa þannig sterka liðsheild sem vinnur að sama marki.
Lýsi er rótgróið fyrirtæki sem framleiðir heilsuvörur úr sjávarafurðum og flytur út vörur til yfir 70 landa. Starfsemin byggir á samhentum og jákvæðum mannauði sem hefur gæði og þjónustu að leiðarljósi.
Lýsi leggur metnað í að taka vel á móti nýju starfsfólki og hlúa að menntun og þjálfun þess svo þau geti leyst störf sín af hendi með sóma og líði vel í starfi. Lýsi vill ráða og halda hæfu starfsfólki sem notar uppbyggileg samskipti á vinnustaðnum, þar sem jöfn laun og jafnrétti eru lögð til grundvallar.
Menning Lýsis einkennist af heiðarleika, jákvæðni, ábyrgð og virðingu.

Starfsmaður í pökkun
Starfsmaður í pökkun
Um er að ræða starf í pökkun neytendavara þar sem keyrðar eru þrjár pökkunarlínur, flöskuáfylling fyrir fljótandi lýsi, töflu/hylkjaáfylling í glös og álþynnupökkun fyrir hylki og töflur.
Sem starfsmaður í pökkun gegnir þú mikilvægu hlutverki í framleiðsluferli þessarar þekktu heilsuvöru. Þú ásamt pökkunarteyminu sérð til þess að vörum okkar sé pakkað rétt og samkvæmt gæðastöðlum.
Við bjóðum upp á jákvætt og vinalegt vinnuumhverfi þar sem samstarfsfólk er tilbúið að aðstoða.
Áhugasöm eru hvött til að sækja um hér á Alfreð.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða vélstjórnanda
- Keyrsla pökkunarlína
- Eftirlit með framleiðslu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Nákvæmni og hafa auga fyrir smáatriðum
- Jákvæðni og sveigjanleiki
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Hjólageymsla
- Sturtuaðstaða
- Starfsmannafélag
Auglýsing birt4. október 2026
Umsóknarfrestur11. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Fiskislóð 5-9, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HeiðarleikiJákvæðniMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiSveigjanleikiTeymisvinnaVandvirkniÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starf í framleiðslueldhúsi
Kjötkompaní ehf.

Starfsmaður í steypuþjónustu
Jarðboranir

Head of Warehouses - Alvotech
Alvotech hf

Uppsetningar
Titus

YAMAHA motor viðhald og viðgerðir
Aflvélar ehf.

Svæðisstjóri vöruhúss
Byko

Verkstjóri á þjónustustöð, Ísafjörður
Vegagerðin

Reynslumikill starfsmaður í framleiðslu á forsteyptum einingum / Construction worker
Einingaverksmiðjan

Kjörbúðin Blönduósi - Umsjón með bakaríi
Kjörbúðin

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka

Starfsmaður í Framleiðslu
Bláa Lónið

Bifvélavirki, vélvirki
Aflvélar ehf.