Isavia ANS
Isavia ANS
Isavia ANS

Viltu vinna við flugfjarskipti

Isavia ANS óskar eftir að ráða áhugasama og fróðleiksfúsa nema í flugfjarskipti. Námið hefst í byrjun janúar 2025 og eru áætluð námslok í lok júní sama ár. Nemendur eru á launum á námstímanum.

Námið er tvíþætt: Bóklegur hluti í 10 vikur og fer fram á venjulegum dagvinnutíma, seinni hlutinn er starfsþjálfun í 16 til 20 vikur í flugfjarskiptadeild Isavia ANS í Grafarvogi. Sú þjálfun fer fram í vaktavinnu. Þeim sem standast lokapróf verður boðið starf flugfjarskiptamanns. Um vaktavinnu er að ræða.

Hlutverk fjarskiptamanna er að tryggja örugg og skilvirk samskipti milli flugvéla, flugstjórnarmiðstöðva, flugrekenda, veðurstofa og annarra aðila sem koma að flugsamgöngum. Fjarskiptin fara fram á ensku og felast í móttöku og sendingu á skeytum er varða öryggi flugsins svo sem staðarákvarðanir, margvíslegar flughæða-, hraða- og flugleiðabreytingar, veðurskeyti, upplýsingar um lendingarskilyrði á flugvöllum og því um líkt.

Lesa má nánar um Flugfjarskipti Isavia ANS hér

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun
  • Tölvukunnátta og góður skrifhraði á tölvu
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
  • Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
Auglýsing birt2. október 2024
Umsóknarfrestur20. október 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnskaMjög góð
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Sóleyjarimi 6, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar