PLAY
PLAY er íslenskt lágfargjaldaflugfélag sem býður flug til vinsælla áfangastaða á sem hagkvæmastan hátt fyrir farþega og náttúru. Með nýlegum Airbus 320neo og 321neo flugvélum er dregið sem mest úr losun gróðurhúsalofttegunda og þannig leitast við að koma fólki á áfangastað með sem minnstu kolefnisfótspori.
Hjá PLAY er öryggið alltaf í fyrsta sæti og áhersla lögð á stundvísi, einfaldleika, gleði og hagstæð verð.
Hjá PLAY er verið að byggja upp fjölbreyttan starfshóp og einstakan starfsanda. Áhersla er lögð á að skapa starfsmönnum öruggt og jákvætt starfsumhverfi sem er laust við mismunun og hvers konar áreitni. Við viljum bæta í þennan hóp drífandi og kraftmiklu fólki sem vill taka þátt í að breyta íslenskri flugsögu.
Nánari upplýsingar eru veittar í gegnum netfangið jobs@flyplay.com.
Eingöngu er tekið á móti umsóknum á https://flyplay.com/storf.
Flight Dispatch Officer
Við leitum að úrræðagóðum og þjónustulunduðum einstaklingum með jákvætt viðmót til að starfa í flugumsjón. Góð almenn tölvukunnátta og framúrskarandi færni í ensku er skilyrði.
Meðal helstu verkefna eru eftirfylgni og framkvæmd breytinga á daglegum flugáætlunum til að tryggja stundvísi flugfélagsins. Starfsstöðin er í Keflavík. Um er að ræða vaktavinnu, þar sem unnið er eftir 5-5-4 vaktakerfi á 12 tíma vöktum, bæði á dagvöktum og næturvöktum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gerð flugáætlana
- Eftirfylgni með vakta- og hvíldarreglum áhafnameðlima
- Undirbúningur fyrir hleðslu flugvéla og gerð hleðsluskráa
- Samskipti við áhafnir og þjónustuaðila
- Almennt eftirlit með leiðakerfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af flugrekstri
- Álagsþol, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun
- Framúrskarandi enskukunnátta í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta
- Jákvætt viðmót
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt2. október 2024
Umsóknarfrestur15. október 2024
Tungumálahæfni
EnskaFramúrskarandi
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
Starf á Fjármálasviði
Cargow Thorship
Þjónusta og tollskrárgerð
Cargow Thorship
Flight Deck Coordinator
Air Atlanta Icelandic
Bakvinnsla á viðgerðarlager
ELKO
Sérfræðingur í þjálfunar- og skírteinamálum flugs
Samgöngustofa
Forstöðumaður bókasafns Norðfjarðar
Fjarðabyggð
Viltu vinna við flugfjarskipti
Isavia ANS
Sérfræðingur í fræðslumálum
Airport Associates
Sérfræðingur í bakvinnslu
Íslandsbanki
Flugmenn - Taktu flugið með okkur!
PLAY
Þjónusturáðgjafi
Félagsbústaðir
Compliance Auditor
PLAY