

Viðskiptastjóri hjá fjártæknifyrirtæki
Kríta er í hraðri sókn og leitar að lausnamiðuðum og metnaðarfullum viðskiptastjóra til að styrkja söluteymið okkar.
Í þessu lykilhlutverki munt þú byggja upp og þróa ný viðskiptasambönd, sinna samskiptum við núverandi viðskiptavini og tryggja að þjónustan okkar sé ætíð í fremstu röð. Þú verður andlit Kríta gagnvart fyrirtækjum sem treysta sveigjanlegum fjármögnunarlausnum Kríta.
Um Kríta hf.
Kríta er leiðandi fjártæknifyrirtæki sem býður upp á hraðvirkar og sveigjanlegar fjármögnunarleiðir fyrir fyrirtæki. Við leggjum áherslu á hraða, sjálfvirkni, gagnsæi og góða þjónustu.
Ef þú ert sjálfstæður, söludrifinn einstaklingur sem hefur reynslu af sölu til fyrirtækja, ert með gott tengslanet og býrð yfir mikilli færni í mannlegum samskiptum, þá viljum við heyra frá þér.
- Kynna og selja fjármögnunarlausnir til fyrirtækja á Íslandi.
- Byggja upp, viðhalda og þróa viðskiptasambönd.
- Kortleggja markaðstækifæri, finna nýja viðskiptavini og þróa sölustefnu.
- Taka virkan þátt í að móta og þróa söluteymið.
- Umsjón með samningagerð og viðskiptasamböndum.
- Taka þátt í stefnumótun og áætlanagerð til að styðja við vöxt félagsins.
- Innleiðing viðskiptavina í kerfi Kríta og tryggja að þeir nýti lausnir okkar sem best.
- Vinna með teyminu að bæta og þróa þjónustuna í takt við þarfir viðskiptavina.
- Reynsla í sölu eða viðskiptastýringu, kostur ef það er á sviði fjármála eða fjártækni.
- Áhugi á fjártækni og nýjungum í tæknilausnum.
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og drifkraftur til að ná árangri.
- Framúrskarandi samskipta- og söluhæfileikar.
- Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Tækifæri til að vinna í einu áhugaverðasta fjártæknifyrirtæki landsins.
- Internet og sími greitt.
- Möguleiki á kauprétti (hlutabréf í Kríta hf)
- Möguleika á að taka virkan þátt í áframhaldandi vexti og móta framtíð fyrirtækisins













