
AÞ-Þrif ehf.
AÞ-Þrif ehf er ungt og framsækið hreingerningafyrirtæki með rúmlega 250 starfsmenn af 22 þjóðernum og býður upp á almenna og sérhæfða þjónustu þegar kemur að þrifum fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. AÞ-Þrif er vaxandi fyrirtæki og við erum sífellt að leita að fleira fólki til að bætast í starfsmannahópinn.
AÞ-Þrif is one of the largest cleaning service in Iceland, with 250 employees and serves private and public companies and building contractors. AÞ-Þrif is expanding and we are always looking for good employees to join our lively workplace.

Viðskiptastjóri
Við leitum að metnaðarfullum og þjónustulunduðum viðskiptastjóra sem hefur yfirgripsmikla þekkingu á ræstingu og sérverkefnum tengdum ræstingu, eða hefur áhuga að verða sér úti um slíka þekkingu. Hlutverk viðskiptastjóra er að tryggja framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini, hafa eftirlit með framkvæmd ræstinga og sérverkefna, vinna tilboð og stuðla að framgangi og gæðum þjónustunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með ræstingarverkefnum og sérverkefnum í ræstingu.
- Þjónusta og samskipti við viðskiptavini, tryggja gæði þjónustunnar og leysa úr vandamálum.
- Gera tilboð í ræstingarverkefni og sérverkefni.
- Skipulagning og eftirlit með framkvæmd verkefna.
- Þjálfun og stuðningur við starfsfólk á vettvangi.
- Samskipti við birgja og val á efnum og tækjum eftir þörfum.
- Tryggja að allar aðgerðir fari fram í samræmi við öryggis- og gæðastaðla.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Menntun sem hentar í starfi, t.d. í viðskiptafræði, rekstri, þjónustustjórnun eða skyldum greinum
-
Frábær hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulipurð.
- Geta til að vinna sjálfstætt og taka ábyrgð á verkefnum.
- Góð tölvufærni og reynsla af tilboðsgerð.
- Reynsla af sölu og myndun viðskiptasambanda.
- Skipulagshæfileikar og færni í að leysa vandamál á vettvangi.
- Hæfni til að stjórna og leiða hóp starfsmanna.
- Geta skrifað og talað íslensku og ensku, önnur tungumál eru kostur.
- Ökuréttindi er skilyrði og önnur vélaréttindi er kostur
- Reynsla og þekking á ræstingarþjónustu og sérverkefnum í ræstingu er mikill kostur
- Þekking af CRM eða öðrum líkum tölvukerfum er kostur.
Auglýsing birt4. febrúar 2025
Umsóknarfrestur28. febrúar 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Skeiðarás 12, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
HandlagniMannleg samskiptiÖkuréttindiSölumennskaViðskiptasambönd
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Egilsstaðir: Söluráðgjafi í verslun
Húsasmiðjan

Þjónustufulltrúi - Sumarstarf
Fastus

Akureyri:Hluta og sumarstörf með möguleika á framtíðarstarfi
Húsasmiðjan

Söluráðgjafi rafbúnaðar hjá Johan Rönning í Reykjanesbæ
Johan Rönning

Járniðnaðarmaður/Metal worker/Welder
Skipavík

Vinnuvélaréttindi og meirapróf
Malbikstöðin ehf.

Sumarstarf Akranesi
Bílaumboðið Askja

Söluráðgjafi
Glófaxi ehf

Tímabundið starf í sumar
Imperial Akureyri

Starf í fyrirtækjaþjónustu IKEA
IKEA

RAFVIRKJAR ATHUGIÐ! TG raf er með starfsstöð í Árborg!
TG raf ehf.

Sölu- og þjónustufulltrúi óskast til starfa hjá Miðeind
Miðeind