Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Viðskiptagreind og gagnavinnsla

Við leitum að sjálfstæðum og reyndum verkefnastjóra/sérfræðingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum. Við erum að leita að einstaklingi sem er til í að ganga í öll verkefni með bros á vör. Reynsla og árangur í verkefnastjórnun og hugbúnaðarþróun er nauðsynlegur ásamt því að hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi.

Starfið er á verkefnastofu upplýsingatæknideildar og er næsti yfirmaður forstöðumaður upplýsingatæknideildar. Verkefnastjóri stýrir umbótum hugbúnaðarlausna í samvinnu við forstöðumann, stjórnendur og aðra starfsmenn. Meðal gagnagrunns- og viðskiptagreindarlausna er nú í notkun MS SQL, MS Analysis Services, TimeXTender og MS Power BI. Mikið verk er framundan við áframhaldandi uppbyggingu á Vöruhúsi gagna og skilvirkri samþættingar lausna í gegnum gagnaskiptistöð.

Á Verkefnastofu starfa fimm verkefnastjórar og tveir í hugbúnaðarþóun að umbótastarfi fyrir allar deildir og stofnanir Kópavogsbæjar. Starfsmenn á Verkefnastofu vinna náið saman á gagnsæjan og á vel skilgreindan hátt.

Stefna Kópavogsbæjar er að vera í fararbroddi í nýsköpun og tileinkar sér tækninýjungar í starfsemi sinni. Mikil áhersla er lögð á sjálfbærni og skilvirkni í starfseminni.

Hjá Kópavogsbæ er gott að starfa og reynt er að tryggja starfsmönnum góð starfskilyrði og möguleika á að vaxa og dafna í starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólagráða í tölvunarfræði (BSc in Computer Science), tölvunarstærðfræði (BSc. Computer Science and Discrete Mathematics), hugbúnaðarverkfræði (BSc. In Software Engineering) eða sambærileg háskólagráða
Víðtæk þekking og góður árangur af þróun hugbúnaðar
Víðtæk þekking og góður árangur af BI og gagnagrunnsvinnslu
Þekking og geta til að forrita í PYTHON og SQL
Minnst 5 ára reynsla og góðum árangri af verkefnastjórnun
Færni í mannlegum samskiptum og skipulagsfærni
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Jákvæðni, áreiðanleiki og traust vinnubrögð
Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku er skilyrði
Góð hæfni í notkun ensku í samskiptum
Kurteisi, þjónustulipurð, nákvæmni og samviskusemi
Námskeið eða próf í verkefnastjórnun er kostur
Helstu verkefni og ábyrgð
hafa yfirumsjón með uppbyggingu á vöruhúsi gagna og gagnavinnslu hjá Kópavogsbæ
skilgreina verkþætti og sjá um framkvæmd umbótaverkefna
greina fyrirliggjandi þarfir notenda til hugbúnaðarlausna
smíða og viðhalda OLAP teningum og BI skýrslum fyrir mismunandi deildir og stofnanir
sinna grófhönnun á viðmóti æskilegra lausna
semja við hugbúnaðarbirgja og halda utan um samskipti við þá
sinna og stýra kerfisprófunum,viðtökuprófunum notenda og skipuleggja uppfærslur lausna
skilgreina breytingar á verklagi og leggja slíkar tillögur formlega fram til samþykktar
tryggja nauðsynlega þekkingu starfsmanna á breyttum vinnubrögðum
sinna þjónustubeiðnum og svara fyrirspurnum varðandi virkni hugbúnaðarlausna sem unnið er með
verkstýra bæði litlum sem stórum innleiðingarverkefnum sem sum geta haft áhrif á alla starfsemi Kópavogsbæjar
verkstýra starfsmönnum þvert á skipurit sem hver sinnir ákveðnum verþáttum verkefnis
Auglýsing birt17. desember 2021
Umsóknarfrestur28. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hamraborg 8, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar