
Arion banki
Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu.
Arion banki er lifandi vinnustaður þar sem starfsumhverfið einkennist af fagmennsku, framsækni, umhyggju og tryggð
Hjá Arion banka starfa um 900 manns, þar af eru 65% konur og 35% karlar. Kynjaskipting á meðal stjórnenda bankans er fremur jöfn og sama gildir um aldursdreifingu innan bankans en meðalaldur starfsfólks Arion banka er 42 ár.
Fjölmargt starfsfólk hefur sýnt bankanum og forverum hans mikla tryggð og eru dæmi um að starfsfólk sé með meira en 40 ára starfsaldur. Meðal starfsaldur hjá Arion banka er tíu ár.

Við leitum að þjónusturáðgjafa í þjónustuver Arion
Við í þjónustuveri Arion banka leitum að öflugum og jákvæðum liðsmanni. Leitað er eftir söludrifnum aðila sem vill starfa sem hluti af góðri liðsheild og hefur ánægju af því að veita framúrskarandi bankaþjónustu. Þá skiptir okkur máli að finna kraftmikinn einstakling sem er tilbúinn að koma sér vel inn í agað og árangursdrifið vinnuumhverfi. Með frumkvæði, samvinnu og skipulagi getum við veitt okkar viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.
Þjónustuverið er staðsett í húsnæði Arion banka á Smáratorgi 3, 201 Kópavogi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu, upplýsingar og faglega ráðgjöf í gegnum tölvupóst, síma og netspjall
- Að aðstoða viðskiptavini við að skilja fjármál betur og læra á nýjungar
- Að framfylgja þjónustu- og sölustefnu bankans hverju sinni
- Ýmis önnur verkefni í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
- Frumkvæði og söludrifni
- Nákvæm vinnubrögð og skipulagshæfni
- Góð tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum
- Góð íslensku og ensku kunnátta í töluðu og rituðu máli. Önnur tungumálakunnátta er kostur
- Menntun og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfi
Auglýsing birt15. desember 2025
Umsóknarfrestur5. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Tæknimaður á þjónustuborði – spennandi tækifæri!
Örugg afritun

Kirkjuvörður í Seljakirkju
Seljakirkja

Vaktstjóri í fullt starf!
BAUHAUS slhf.

Óskum eftir starfsmanni í 50% stöðu.
Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra

Þjónustufulltrúi í tolladeild
Jónar Transport

Sérfræðingur í reikningshaldi
FSRE

Þjónustufulltrúi gestastofu og miðasölu
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Þjónustufulltrúi hjá VIRK
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Starfsfólk í verslun - Akureyri - Helgarstarf
ILVA ehf

Þjónustusérfræðingur
Vélafl ehf

Tæknimaður á Sauðárkróki
OK

Þjónustufulltrúi
GÓRILLA VÖRUHÚS