VIRK Starfsendurhæfingarsjóður
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Þjónustufulltrúi hjá VIRK

VIRK leitar að jákvæðum, þjónustulunduðum og metnaðarfullum einstaklingi í starf þjónustufulltrúa. Viðkomandi þarf að geta tekist á við fjölbreytt, mikilvægt og gefandi starf í þjónustuveri VIRK. Um er að ræða þjónustu, upplýsingagjöf og leiðsögn við einstaklinga í þjónustu hjá VIRK. Í starfinu felast einnig ýmis skrifstofustörf, innkaup og önnur verkefni sem snúa að innra starfi VIRK.

Um er að ræða 80-100% starf. Vinnutími er frá kl. 8:00 – 16:00 mánudaga – fimmtudaga og frá kl. 8:00 – 15:00 föstudaga.

Æskilegt er að starfsmaður geti byrjað sem fyrst.

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta, upplýsingagjöf og leiðsögn fyrir einstaklinga í þjónustu 
  • Símsvörun, miðlun upplýsinga, móttaka erinda og skráning í kerfi VIRK 
  • Úthringingar og bókanir vegna viðtala 
  • Umsjón með biðstofum, fundarherbergjum og kaffistofu 
  • Innkaup og ferðapantanir 
  • Ýmis verkefni sem snúa að viðburðum og innra starfi VIRK 
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni í samstarfi við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í heilbrigðisgagnafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi 
  • Rík þjónustulund, jákvætt viðhorf og sveigjanleiki 
  • Reynsla af því að vinna með persónuupplýsingar 
  • Góð stafræn hæfni, reynsla af skráningarvinnu æskileg 
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni  
  • Trúnaður, heilindi og metnaður í starfi 
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli 
  • Hreint sakavottorð 
Auglýsing birt11. desember 2025
Umsóknarfrestur4. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 18, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar