
Við leitum að markaðsfulltrúa!
Markaðsfulltrúi hjá S4S
Langar þig að vinna með sterk vörumerki, samfélagsmiðla, netverslanir og skapandi markaðsverkefni?
S4S leitar að metnaðarfullum markaðsfulltrúa sem hefur áhuga á stafrænum markaðsmálum, efnissköpun og verslun. Um er að ræða 50-100% starf, þar sem endanlegt starfshlutfall ræðst af reynslu og því hversu stórum hluta verkefnanna hér að neðan viðkomandi getur tekið að sér.
Í markaðsdeild S4S eru engir tveir dagar eins og þú færð tækifæri til að taka þátt í öllu frá daglegri umsýslu netverslana til herferða, viðburða og efnisframleiðslu.
Þú verður hluti af öflugu markaðsteymi og vinnur náið með markaðsstjóra, samfélagsmiðlastjóra og öðrum deildum fyrirtækisins við að byggja upp og styrkja vörumerki S4S.
Vörumerki S4S eru: AIR - Ecco - Ellingsen - Kaupfélagið - Lindex - Skechers - Steinar Waage - S4S Premium Outlet - Skór.is
Samfélagsmiðlar og efnissköpun
- Tryggja virka og faglega nærveru vörumerkja félagsins á samfélagsmiðlum.
- Vinna náið með samfélagsmiðlastjóra að efnisáætlunum og herferðum.
- Skapa lifandi og áhugavert efni fyrir samfélagsmiðla.
- Taka þátt í myndatökum, myndbandsgerð og annarri efnisframleiðslu.
Netverslanir
- Bera ábyrgð á útliti, framsetningu og gæðum netverslana.
- Uppfæra forsíður, myndefni, lendingarsíður, vöruframsetningu og annað efni.
- Tryggja að vefurinn sé lifandi, uppfærður og endurspegli markaðsáherslur hverju sinni.
- Fylgjast með conversion / hit-rate og vinna með markaðsstjóra og netverslunarteymi að þróun netverslunnar.
Fréttabréf / Netklúbbur
- Umsjón með fréttabréfum og netklúbbi Skór.is og Lindex.
- Skipuleggja, útbúa og senda fréttabréf samkvæmt markaðsáætlun.
- Fylgjast með árangri og leggja fram tillögur að umbótum.
Meta og Google
- Setja upp og fylgja eftir herferðum á Meta/Google.
- Umsjón með Google leitarorðum.
- Fylgjast með árangri og taka saman tölfræði, ROAS, conversion og aðrar lykil mælingar.
Önnur verkefni
- Aðstoða við skipulagningu og framkvæmd viðburða.
- Taka þátt í markaðsherferðum og öðrum spennandi verkefnum markaðsdeildarinnar.
- Sinna öðrum tilfallandi verkefnum sem falla að starfinu.
Við leitum að einstakling sem
- Hefur menntun eða reynslu sem nýtist á sviði markaðsmála.
- Hefur reynslu af samfélagsmiðlum og efnissköpun.
- Er skipulagður, sjálfstæður og lausnamiðaður.
- Hefur gott auga fyrir framsetningu og smáatriðum.
- Er með góða íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti.
- Hefur áhuga á verslun, þjónustu og markaðsmálum.
- Hefur reynslu af Meta og Google herferðum.
- Er með bílpróf og aðgengi að bíl þar sem viðkomandi þarf að geta ferðast á milli verslana.
Íslenska
Enska








