Lífland ehf.
Lífland ræktar lýð og land. Þjónusta okkar sýnir ræktarsemi við grunnstoðir mannlífs um allt land. Með fjölbreyttu vöruúrvali og vísindalegum vinnubrögðum sköpum við góðan jarðveg fyrir hverskonar rækt; jarðrækt, búfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt.
Þungamiðjan í starfi okkar er þó ekki síst mannrækt í víðustu merkingu þess orðs. Íslendingar hafa sterka þörf fyrir að komast í snertingu við uppruna sinn og náttúru landsins.
Það gildir einu hver klæðist stígvélunum - stoltur bóndi, frískleg hestakona eða fjölskyldufaðir í sumarhúsi - þau vita hvar þau standa. Lífland gefur þeim þessa jarðtengingu.
Lífland er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á að uppfylla þarfir og óskir viðskiptavina. Starfsemi fyrirtækisins lýtur annars vegar að þjónustu tengdri landbúnaði og tengist hins vegar hestaíþróttum, dýrahaldi, útivist og þjónustu við matvælaiðnaðinn.
Hlutverk Líflands er að bæta árangur viðskiptavina sinna. Við viljum sjá fyrir breytingar á þörfum okkar viðskiptavina og bjóða áhugaverðustu lausnirnar fyrir þá á hverjum tíma fyrir sig.
Lífland rekur tvær verksmiðjur, annars vegar fóðurverksmiðju á Grundartanga og hins vegar kornmyllu í Korngörðum í Reykjavík ásamt því að reka Nesbúegg. Skrifstofur og lager eru staðsett í Brúarvogi, Reykjavík. Verslanir Líflands eru á Lynghálsi, Reykjavík, Borgarbraut Borgarnesi, Grímseyjargötu Akureyri, Ormsvöllum Hvolsvelli, Efstubraut Blönduósi og Austurvegi Selfossi.
Verslunarstjóri Reykjavík
Lífland óskar eftir að ráða verslunarstjóra í verslun að Lynghálsi Reykjavík.
Starfslýsing:
Dagleg stjórnun, birgðahald og uppgjör.
Innkaup og sala.
Umsjón með starfsmannahaldi verslunar.
Almenn verslunarstörf.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Menntun í viðskiptafræði eða verslunarstjórnun er kostur.
Reynsla af verslunarstörfum æskileg.
Góð þekking á reið- og búvörum.
Góð almenn tölvuþekking og þekking á Navision er kostur.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar veitir Rannveig Hrólfsdóttir, mannauðsstjóri, rannveig@lifland.is
Auglýsing birt6. september 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Lyngháls 3, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Óskum eftir sölu- og þjónustufulltrúa!
Hringdu
Rammagerðin-Reykjavík
Rammagerðin
Apótekarinn - Kirkjusandur (hlutastarf)
Apótekarinn
Sérvara - Hagkaup Kringlunni
Hagkaup
Icewear Þingvöllum óskar eftir starfsfólki
ICEWEAR
Sala og afgreiðsla
Vatnsvirkinn ehf
Lyfja Blönduósi - Sala og Þjónusta
Lyfja
Jói Útherji - Starfsfólk í verslun óskast
Jói Útherji
100% eða 50% starf til áramóta.
Partýbúðin
Starfskraftur óskast
Vero Moda
Húsavík - tímavinna
Vínbúðin
Sölufulltrúi í verkfæra- og festingadeild BYKO Breidd
Byko