Lífland ehf.
Lífland ræktar lýð og land. Þjónusta okkar sýnir ræktarsemi við grunnstoðir mannlífs um allt land. Með fjölbreyttu vöruúrvali og vísindalegum vinnubrögðum sköpum við góðan jarðveg fyrir hverskonar rækt; jarðrækt, búfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt.
Þungamiðjan í starfi okkar er þó ekki síst mannrækt í víðustu merkingu þess orðs. Íslendingar hafa sterka þörf fyrir að komast í snertingu við uppruna sinn og náttúru landsins.
Það gildir einu hver klæðist stígvélunum - stoltur bóndi, frískleg hestakona eða fjölskyldufaðir í sumarhúsi - þau vita hvar þau standa. Lífland gefur þeim þessa jarðtengingu.
Lífland er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á að uppfylla þarfir og óskir viðskiptavina. Starfsemi fyrirtækisins lýtur annars vegar að þjónustu tengdri landbúnaði og tengist hins vegar hestaíþróttum, dýrahaldi, útivist og þjónustu við matvælaiðnaðinn.
Hlutverk Líflands er að bæta árangur viðskiptavina sinna. Við viljum sjá fyrir breytingar á þörfum okkar viðskiptavina og bjóða áhugaverðustu lausnirnar fyrir þá á hverjum tíma fyrir sig.
Lífland rekur tvær verksmiðjur, annars vegar fóðurverksmiðju á Grundartanga og hins vegar kornmyllu í Korngörðum í Reykjavík ásamt því að reka Nesbúegg. Skrifstofur og lager eru staðsett í Brúarvogi, Reykjavík. Verslanir Líflands eru á Lynghálsi, Reykjavík, Borgarbraut Borgarnesi, Grímseyjargötu Akureyri, Ormsvöllum Hvolsvelli, Efstubraut Blönduósi og Austurvegi Selfossi.
Lífland leitar að aðstoðarlagerstjóra
Lífland óskar eftir að ráða aðstoðarlagerstjóra í fullt starf í vöruhúsi félagsins í Brúarvogi
Starfssvið :
- Afleysingar lagerstjóra
- Verkstjórn með lagerstjóra
- Tínsla og afgreiðsla á pöntunum
- Móttaka og frágangur á vörum í vöruhúsi
- Almenn lagerstörf
Hæfniskröfur:
- Reynsla af lagerstörfum er skilyrði
- Réttindi á lyftara er kostur.
- Góð almenn tölvuþekking og þekking á Navision er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
- Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar veitir Rannveig Hrólfsdóttir, mannauðsstjóri, rannveig@lifland.is
Auglýsing birt29. ágúst 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaMjög góð
Staðsetning
Brúarvogur 1-3 1R, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Dynamics NAVLagerstörfLyftarapróf
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Tækjamaður
Slippurinn Akureyri ehf
Sendill og lagerstarf
AB Varahlutir
Sala og afgreiðsla
Vatnsvirkinn ehf
Gæðaeftirlit
Innnes ehf.
Lagerstarfsmaður SportsDirect
Sports Direct Lindum
Framleiðsla / Lager
Vogue
100% eða 50% starf til áramóta.
Partýbúðin
Lagerstarf
GA Smíðajárn
Lagerstarfsmaður - Lagnaverslun BYKO Breidd
Byko
Heimsendingar á kvöldin
Dropp
Starfsmaður í útkeyrslu
Autoparts.is
Lagerstjóri
Fálkinn Ísmar / Iðnvélar