Hringdu
Hringdu

Óskum eftir sölu- og þjónustufulltrúa!

Hæ!

Við leitum að öflugum sölu- og þjónustufulltrúa í verslun Hringdu. Um er að ræða 100% starf og er aldurstakmark 20 ár.

Starfið

Í starfinu felst að aðstoða viðskiptavini Hringdu með allt sem tengist okkar vörum og þjónustu, á mannamáli. Þú ert andlit fyrirtækisins, geislar af jákvæðni, hugsar í lausnum, elskar mannleg samskipti og vilt umfram allt veita frábæra þjónustu!

Hvað ertu að fara gera?

  • Afgreiða pantanir og breytingar í síma, verslun og á netinu
  • Aðstoða viðskiptavini með reikninga og einföld tæknileg mál
  • Eiga samskipti við okkar helstu birgja
  • Tækla ýmis önnur verkefni sem koma upp á

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf, reynsla sem nýtist eða mikill áhugi á starfinu!
  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góðir samskiptahæfileikar og mikil þjónustulund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta


Ef þér líst vel á okkur og starfið hvetjum við þig til að sækja um!

Um Hringdu

Hringdu er lítið en ört vaxandi fjarskiptafyrirtæki þar sem hæfileikaríkir einstaklingar geta unnið sig upp í starfi. Hér vinna fáar hendur mörg og mismunandi verk og er því starfið fjölbreytt, reynslumikið og ríkt af ábyrgð. Við fáum sendan mat í vinnuna fimm daga vikunnar en drögum fram grillið við góð tækifæri. Starfsmannafélagið Svaraðu sér fyrir góðu skemmtanalífi og hér elska allir kaffi, ketti/hunda & foosball.

Hringdu hefur hlotið viðurkenningu sem Fyrirmyndafyrirtæki VR árin 2017, 2018, 2019 og 2023 og sem Fyrirtæki ársins 2020, 2021, 2022 & 2023.

Ánægðustu viðskiptavinir í net- og símaþjónustu eru hjá Hringdu 2019-2024 samkvæmt Meðmælingu Maskínu.

Fríðindi í starfi
  • 7 tíma vinnudagur
  • Aðgangur að Hopp hjólum
  • Nudd á vinnutíma
  • Símtækjastyrkur
  • Net- og símaáskrift
  • Líkamsræktarstyrkur
Auglýsing birt19. september 2024
Umsóknarfrestur30. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Ármúli 27, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar