
Suðurnesjabær
Suðurnesjabær er næstfjölmennasta sveitarfélagið á Suðurnesjum með um 4.350 íbúa. Mikil uppbygging og gróska er í sveitarfélaginu, m.a. með uppbyggingu nýrra hverfa. Í Suðurnesjabæ eru m.a. tveir grunnskólar, tveir leikskólar, tvær íþróttamiðstöðvar og sundlaugar, bóka- og byggðasafn. Auk þess er ýmis önnur þjónusta og starfsemi á vegum sveitarfélagsins. Suðurnesjabær er heilsueflandi samfélag sem býður uppá nálægð við náttúruna og einstaka strandlengju sem umvefur sveitarfélagið.
Verkstjóri í vinnuskóla
Suðurnesjabær auglýsir eftir áhugasömum einstaklingi í starf verkstjóra vinnuskóla.
Starf verkstjóra felst í að skipuleggja og stýra starfi vinnuskólans, leiðbeina og samræma vinnu flokkstjóra og útdeila verkefnum í samráði við forstöðumann umhverfismiðstöðvar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Að hafa náð 22 ára aldri
Sé hæfur til að vera ungmennum fyrirmynd hvað varðar heilbrigðan lífsstíl, stundvísi og tillitssemi
Sé sjálfstæður í vinnubrögðum, skipulagður og lausnamiðaður
Hafa frumkvæði og drifkraft í starfi
Hafa góða færni í samskiptum og hæfni til að stýra fólki
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber daglega ábyrgð og yfirumsjón á skipulagningu og starfsemi vinnuskólans í samstarfi við forstöðumann umhverfismiðstöðvar.
Vinnur markvisst að því að efla liðsheild og góða líðan starfsfólks og nemenda í vinnuskólanum.
Hefur samskipti við forráðamenn, viðeigandi stofnanir og deildir.
Forgangsraðar, samræmir og setur flokkstjórum vinnuskóla fyrir verkefni og tekur þátt í störfum þeirra.
Leiðbeinir flokkstjórum um verklag og aðferðir og hefur eftirlit með að vel og rétt sé unnið.
Gætir þess að ávallt liggi skýrt fyrir hvaða verkefnum flokkstjórar eigi að sinna.
Hefur frumkvæði að lausn verkefna á því sviði sem undir hann heyra og hann starfar að.
Staðfestir vinnutíma nemenda og flokkstjóra vinnuskóla og skilar til yfirmanna.
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann
Auglýsing birt27. febrúar 2023
Umsóknarfrestur2. apríl 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Laus störf í byggingavinnu, hellulagnir, yfirborðsfrágang og jarðvinnu
PK Verk ehf.

Verka- og vélamenn
Garðlist ehf

Starfsmaður í framleiðslu og merkingar
Signa ehf

Infrastructure Technician – Piping & Cooling Systems
Verne Global ehf

Customer Support Supervisor
Verne Global ehf

Við leitum að öflugum liðsfélaga í gufuveitu
Orka náttúrunnar

Reyndur pípari óskast til starfa
Aðallagnir

Bílstjóri með meirapróf óskast
Dreki ehf

Handlaginn Verkamaður / Workshop fabrication
Glerverk

FJÖLHÆFUR STARFSMAÐUR ÓSKAST TIL MOLTU
Molta ehf.

Húsasmiður
Bolur Byggingafélag ehf

Tæknimaður í samsetningu og framleiðslu
Thor Ice Chilling Solution