Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Verkefnisstjóri við færni og hermisetur í Hjúkrunar- og ljós

Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra við færni- og hermisetur Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar og Heilbrigðisvísindasviðs - HermÍs. Um framtíðarstarf er að ræða.

Um er að ræða fjölbreytt, skemmtilegt og lifandi starf í síbreytilegu og kviku umhverfi þar sem þróun nýrra kennsluhátta og nýsköpun er í fyrirrúmi. Færni- og hermikennsla byggir m.a. á notkun svokallaðra sýndarsjúklinga, hlutherma og sýndarveruleika sem verkefnisstjóri þarf að vera reiðubúinn að kynna sér og fylgja eftir þróun í þeim efnum.

Starf verkefnisstjóra felst fyrst og fremst í daglegri umsýslu færni- og hermiseturs Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar, auk HermÍs. Þá felast einnig í starfinu verkefni á deildaskrifstofu sem einkum lúta að skipulagi náms, stundaskrárgerð og undirbúningi fyrir viðburði.

Verkefnisstjórinn heyrir undir deildarforseta Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar og hefur aðsetur í Eirbergi, við Eiríksgötu 34, ásamt öðru starfsfólki í stoðþjónustu deildar, sem og samstarfsfólki í HermÍs.

Í stefnu Háskóla Íslands - HÍ26 - er sérstök áhersla lögð á skólinn sé góður vinnustaður, að starfsumhverfi sé hvetjandi með vellíðan nemenda og starfsfólks að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að laða að metnaðarfullt fólk með fjölbreyttan bakgrunn. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd fyrir starfsfólk stjórnsýslu skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg umsýsla, bókanir, skipulag og viðhald tækja og búnaðar

  • Undirbúningur fyrir nám og kennslu í samráði við hlutaðeigandi kennara, sem og frágangur að lokinni kennslu

  • Innkaup og birgðahald búnaðar sem nýttur er til kennslunnar

  • Þjónusta, stuðningur og upplýsingaveita fyrir þau sem koma að kennslu í setrinu

  • Undirbúningur og þátttaka í viðburðum sem tengjast setrinu

  • Þátttaka í stundaskrárgerð

  • Þátttaka í þróunarverkefnum er lúta að færni- og herminámi

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, æskilegt er að það sé á sviði heilbrigðisvísinda

  • Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði

  • Klínískt nám og starfsreynsla á klínískum vettvangi er kostur

  • Góð samstarfshæfni, sveigjanleiki og rík þjónustulund

  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Auglýsing birt3. júní 2025
Umsóknarfrestur13. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Eiríksgata 34, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar