
Fagaðili Akureyri
Píeta samtökin óska eftir fagaðila með starfsréttindi í hlutastarf í þverfaglegt meðferðarteymi Píeta samtakanna. Í teyminu eru sálfræðingar, félagsráðgjafar, læknir og iðjuþjálfi.
Píeta samtökin eru heimilislegur og fjölskylduvænn vinnustaður þar sem lögð er áhersla á hlýlegt viðmót og góðan starfsanda. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Píeta samtökin veita gagnreynda meðferð fyrir einstaklinga 18 ára og eldri með sjálfsvígshugsanir og/eða sjálfsskaða. Samtökin bjóða einnig upp á stuðning fyrir aðstandendur í formi viðtala og hópa. Þá sinna þau einnig forvörnum og fræðslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Áhættumat í ljósi sjálfsvígshættu og/eða sjálfsskaða
· Mat á geðrænum vanda
· Einstaklings- og hópmeðferð
· Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
· Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
· Þátttaka í þróunarstarfi Píeta
Menntunar- og hæfniskröfur
· Löggild starfsréttindi sálfræðingur / félagsráðgjöf / læknir / geðhjúkrun / iðjuþjálfi
· Þekking og reynsla af meðferðarvinnu
· Þekking eða áhugi á Díalektískri atferlismeðferð (DAM) er kostur
· Hæfni í mannlegum samskiptum, hæfni í að vinna sjálfstætt og í teymi
· Hæfni í að halda kynningar og námskeið
· Góð íslensku- og enskukunnátta
· Góð almenn tölvukunnátta
Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma og lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til endurmenntunar. Fagteymið vinnur þétt saman og er boðið upp á reglulega handleiðslu.
Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Ólafsdóttir fagstjóri Píeta [email protected] eða Ellen Calmon framkvæmdastýra Píeta [email protected], eða í síma 552-2218








