

Gagnaforritari í tengslum við vísindarannsóknina Blóðskimun
Laust er til umsóknar fullt starf gagnaforritara til eins árs í tengslum við vísindarannsóknina Blóðskimun til bjargar.
Starfið er allt í senn spennandi, fjölbreytt og krefjandi. Mikilvægt er að viðkomandi sé drífandi, reiðubúinn að leggja sitt af mörkum til að stuðla að framgangi rannsóknarinnar og búi yfir sveigjanleika og aðlögunarhæfni sem síbreytileg og lifandi verkefni innan rannsóknarinnar geta krafist.
Rannsóknin er einstök á heimsvísu. Markmið hennar er að rannsaka árangur skimunar fyrir góðkynja einstofna mótefnahækkun (MGUS) sem er forstig mergæxlis. Verkefnið er unnið í samstarfi við Háskóla Íslands, Landspítala háskólasjúkrahús, Krabbameinsfélag Íslands, Landlæknisembættið og fjölda erlendra háskóla. Öllum einstaklingum 40 ára og eldri sem eru búsettir á Íslandi var boðið að taka þátt og er rannsóknin samansett af rúmlega 80 þúsund einstaklingum sem þegar hafa verið skimaðir fyrir forstigi mergæxlis með blóðprufu og þeim einstaklingum sem greindust með forstig mergæxlis hefur verið fylgt eftir til þess að meta ávinning af skimunarrannsóknum.
-
Forritun sjálfvirkra ferla sem framkvæma samskipti við gagnagrunna og vefþjónustur.
-
Útfærsla, viðhald og þróun á SQL gagnagrunnum
-
Samskipti við hagaðila við greiningu á gagnakröfum og tækifærum í hagnýtingu gagna.
-
Gagnavarsla og utanumhald gagna.
-
Þróun og eftirfylgni á öryggisverkferlum.
-
BS-gráða í tölvunarfræði eða öðrum tengdum greinum.
-
Reynsla og þekking á MySQL gagnagrunnum
-
Þekking á Linux og API samskiptum er kostur
-
Góð reynsla og þekking á gagnavinnslu með Python eða R.
-
Áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði ásamt góðri hæfni til að miðla þekkingu.
-
Jákvætt viðhorf og lausnamiðuð hugsun.











