
Samtök sveitarfélaga á Vesturland
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi eru hagsmunasamtök sveitarfélaganna níu á Vesturlandi. Starfsvæði SSV nær frá Hvalfirði í suðri til Gilsfjarðar í norðri og eru höfuðstöðvar SSV í Borgarnesi en með starfstöðvar á Akranesi og Hellissandi. SSV starfar að fjölbreyttum verkefnum til dæmis á sviði atvinnusköpunar-, nýsköpunar-, menningar- og velferðarmála. Þá eru undir hatti SSV er rekin Markaðs- og áfangastaðastofa Vesturlands sem sér um markaðs og kynningarmál landshlutans og Sorpurðun Vesturlands sem rekur urðunarstaðin að Fíflholtum. Starfsfólk SSV er í dag 13 talsins víðsvegar um landshlutann.

Verkefnastjóri innleiðingar farsældar á Vesturlandi
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi auglýsa eftir verkefnastjóra farsældar í landshlutanum. Verkefnið er samstarf SSV og mennta- og barnamálaráðuneytisins en samstarfssamningur þess efnis var undirritaður á Farsældardegi Vesturlands 16. maí síðastliðinn. SSV er með starfstöðvar á Akranesi, Borgarnesi og Hellissandi.
Markmið verkefnisins eru að samhæfa farsældarþjónustu í sveitarfélögunum á Vesturlandi og koma á fót svæðisbundnu farsældarráði í landshlutanum og ráðið er tímabundið til tveggja ára.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni sem verkefnastjóra farsældar á Vesturlandi eru:
- að eiga virkt samráð við sveitarfélögin á Vesturlandi, starfsfólk þeirra sem sinna farsældarþjónustu og þjónustuveitendur farsældar á svæðinu með það fyrir augum styðja við og samhæfa farsældarþjónustu í landshlutanum
- að leiða undirbúning við starfrækslu svæðisbundins farsældarráðs á Vesturlandi
- umsjón með svæðisbundins farsældarráði, boða fundi þess og bera ábyrgð á frágangi og skilum á afurð þess til allra sveitarstjórna í landshlutanum
- að móta verkferla og verkáætlun fyrir verkefnið með það að markmiði að fyrir lok tímabilsins hafi svæðisbundið farsældarráð tekið til starfa og unnin hafi verið fyrsta áætlun um svæðisbundna forgagnsröðun aðgerða um farsæld barna til fjögurra ára
- samskipti við samhæfingarteymi hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu
- að taka þátt í mótun tengslanets verkefnastjóra farsældarmála með hinum landshlutasamtökunum. Umsjón með Ungmennaráði Vesturlands og samráði tómstunda- og æskulýðsfulltrúa á Vesturlandi
- tengiliður SSV við forvarnarverkefnið „Öruggara Vesturland“ samráðsverkefni gegn heimilisofbeldi á Vesturlandi
- þátttaka í byggðaþróunarverkefnum SSV sem tengjast velferðarmálum
·
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtast í starfi í samræmi við verkefnalýsingu
- Viðbótarnám í greinum tengdum farsældarmálum kostur
- Starfsreynsla á sviði félags-, skóla- og/eða barnaþjónustu
- Reynsla af verkefnastjórn æskileg
- Launsamiðuð hugsun og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Auglýsing birt7. ágúst 2024
Umsóknarfrestur23. ágúst 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)

Rannsóknartæknir
BM Vallá

Leiðtogi í umhverfis- og skipulagsmálum
Sveitarfélagið Hornafjörður

Byggingarverk- eða tæknifræðingur
JTV ehf

Verkefnastjóri hjá Bygging og Viðhald
Bygging og Viðhald ehf

Sérfræðingur í málefnum félagslegrar samræðu aðila vinnumarkaðarins og mannsæmandi starfa: Sect
EFTA Secretariat

Yngri byggingarverkfræðingur eða byggingartæknifræðingur
JTV ehf

Verkefnastjóri á verkefnastofu
Landspítali

Sérfræðingur í neyðarvörnum
Rauði krossinn á Íslandi