Austurbrú ses.
Austurbrú ses.
Austurbrú ses.

Verkefnastjóri brothættra byggða

Hefur þú brennandi áhuga á uppbyggingu samfélaga?

Við auglýsum eftir sérfræðingi til að leiða verkefni brothættra byggða á Stöðvarfirði. Verkefnið er fjölbreytt og tengist byggðaþróun í víðum skilningi. Verkefnið er hluti af verkefnum Brothættra byggða og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Austurbrúar og Fjarðabyggðar. Í starfinu felst m.a. stefnumótun, umsjón og framkvæmd verkefna, upplýsingamiðlun, ráðgjöf
og samskipti við hagaðila.

Um fullt starf er að ræða með starfsstöð á Stöðvarfirði og þarf viðkomandi að
geta hafið störf sem fyrst.

Við leitum að einstaklingi sem er jákvæður og hvetjandi, lausnamiðaður, skipulagður og á auðvelt með að vinna með fólki, leiðbeina, draga saman upplýsingar og skapa yfirsýn.

Ef þú vilt vinna á faglega krefjandi og skemmtilegum vinnustað, þar sem hvatinn er efling samfélagsins á Stöðvarfirði þá er þetta starfið fyrir þig!

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í verkefninu. Háskólamenntun er kostur.
Haldbær starfsreynsla og reynsla af verkefnastjórnun.
Þekking, skilningur og reynsla af byggðamálum mikilvæg.
Mjög góð tölvu- og tæknifærni.
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og mjög góð færni í mannlegum samskiptum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fylgja eftir ákvörðunum verkefnisstjórnar til eflingar byggðar og mannlífs á Stöðvarfirði.
Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum á svæðinu.
Miðlun upplýsinga og skýrslugerð til samstarfsaðila og íbúa.
Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í byggðalaginu.
Önnur verkefni í samstarfi við sveitarfélagið samkvæmt samkomulagi.
Fríðindi í starfi
Sveigjanlegt starfsumhverfi
Stytting vinnuviku
Góður aðbúnaður
Heimavinnudagar
Jafnlaunavottun
Auglýsing birt5. janúar 2022
Umsóknarfrestur17. janúar 2022
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tjarnarbraut 39, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar