Origo ehf.
Origo ehf.
Origo ehf.

Verkefnastjóri á orku- og innviðasviði

Við leitum að reyndum verkefnastjóra til að stýra uppsetningum og innleiðingu á flóknum tæknilausnum til gagnavera og innviðafyrirtækja á Íslandi

Við á orku- og innviðasviði Origo leitum að öflugum og metnaðarfullum tæknilegum verkefnastjóra til að stýra uppsetningum og innleiðingu á flóknum tæknilausnum til gagnavera og innviðafyrirtækja á Íslandi. Starfið felur í sér að leiða verkefni tengd gæðamálum, ferlum og samskiptum við viðskiptavini, birgja og tæknifólk.

Hlutverkið krefst góðrar tækniþekkingar á innviðalausnum og gagnaverum, auk hæfni til að leiða verkefni og tryggja að rekstur og þjónusta uppfylli ströngustu gæðakröfur.

Við leitum að einstaklingi sem

  • Er lausnamiðaður og á auðvelt með að aðlaga sig að breytingum.
  • Hefur brennandi áhuga á tækni og þróun innviðalausna.
  • Nýtur sín bæði sem hluti af teymi og í sjálfstæðum verkefnum.
  • Er tilbúinn að axla ábyrgð og tryggja hámarksöryggi og gæði í rekstri.
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun og innleiðing ferla til að hámarka skilvirkni og öryggi í rekstri.

  • Byggja upp samskipti við viðskiptavini, lausn vandamála og framþróun þjónustu.

  • Þátttaka í stefnumótun um þróun gagnaveralausna og nýsköpun innan innviða.

  • Eftirfylgni með árangri, frammistöðu og gæðaviðmiðum.

  • Samskipti og samvinna við tækniteymi, samstarfsaðila og birgja.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í verkfræði, tölvunarfræði eða skyldum greinum (eða sambærileg reynsla).

  • Reynsla af vinnu í gagnaverum eða með innviðalausnir (t.d. net, netþjónar, kæling, aflgjafar).

  • Góð þekking á gæðastjórnun, ferlaumbótum og verkefnastjórnun.

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og reynsla af beinni þjónustu við viðskiptavini.

  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og skipulagshæfileikar.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.

Fríðindi í starfi
  • Krefjandi og spennandi verkefni í ört vaxandi tækniumhverfi
  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun sviðsins og stefnu

  • Gagnkvæmt traust og sveigjanleika í starfi

  • Heilbrigður vinnustaður með gott mötuneyti og líkamsrækt

  • Fyrsta flokks tækni, frábært starfsumhverfi og öflugt félagslíf

  • Hvatning til að þróast í starfi og bæta við þig þekkingu

  • Öfluga velferðar- og heilsustefnu

  • Styrkir, s.s. íþróttastyrk, samgöngustyrk o.fl.

Auglýsing birt20. ágúst 2025
Umsóknarfrestur3. september 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar