Rent-A-Party
Rent-A-Party
Rent-A-Party

Rekstrarstjóri Rent-A-Party

    Rekstrarstjóri Rent-A-Party

    Við erum að leita að kraftmiklum, skipulögðum og þjónustumiðuðum einstaklingi til að gegna starfi rekstrarstjóra.
    Starfið felst m.a. í því að skipuleggja og stýra afhendingum og uppsetningum á búnaði, ásamt því að hafa umsjón með starfsfólki. Rekstrarstjóri er ábyrgur fyrir ástandi leigubúnaðar og sér til þess að allur búnaður sé í fullkomnu standi.
    Rekstrarstjóri ber jafnframt ábyrgð á að öllum gæðastöðlum sé fylgt eftir þegar kemur að þjónustu og samskiptum við viðskiptavini fyrirtækisins.

    Um fullt starf er að ræða og þarf viðkomandi að geta verið nokkuð sveigjanlegur varðandi vinnutíma. Þar sem að verkefni á þessu sviði eru flest um helgar þarf að gera ráð fyrir helgarvinnu.

    Menntunar- og hæfniskröfur:

    • Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.

    • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.

    • Framúrskarandi þjónustulund og mikil hæfni í mannlegum samskiptum.

    • Almenn tæknikunnátta er nauðsynleg.

    • Góð tölvukunnátta s.s. Word, Excel, tölvupóstur o.fl.

    • Reynsla af stjórnunarstörfum er æskileg.

    Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

    Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda hér í gegnum ráðningarkerfi Alfreðs. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

    Um Rent-A-Party

    Rent-A-Party sérhæfir sig í leigu á öllum þeim búnaði sem getur gert viðburði flottari, skemmtilegri og eftirminnilegri, ásamt smásölu á tilheyrandi vörum. Við leggjum mjög mikla áherslu á að veita fyrsta flokks þjónustu.

    Auglýsing birt14. ágúst 2025
    UmsóknarfresturEnginn
    Tungumálahæfni
    ÍslenskaÍslenska
    Nauðsyn
    Framúrskarandi
    EnskaEnska
    Nauðsyn
    Framúrskarandi
    Staðsetning
    Vesturvör 32B, 200 Kópavogur
    Starfstegund
    Hæfni
    PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
    Starfsgreinar
    Starfsmerkingar