Vinnueftirlitið
Vinnueftirlitið

Verkefnastjóri hjá Vinnueftirlitinu

Viltu taka þátt í að koma í veg fyrir einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustöðum?

Vinnueftirlitið auglýsir eftir að ráða öflugan verkefnisstjóra til a.m.k. tveggja ára til að leiða þróun á nýrri vefsíðu fyrir félagslegt vinnuumhverfi með áherslu á forvarnir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Verkefnið er liður í að fylgja eftir tillögum aðgerðarhóps félags- og barnamálaráðherra í kjölfar #MeToo-hreyfingarinnar sem hófst árið 2017. Um er að ræða spennandi og framsækið verkefni sem felur í sér einstakt tækifæri til að hafa áhrif á vellíðan starfsfólks á innlendum vinnumarkaði.

Næsti yfirmaður er sviðsstjóri heilsu- og umhverfissviðs Vinnueftirlitsins en viðkomandi mun vinna í nánu samstarfi við þverfaglegt teymi sérfræðinga og hagsmunaaðila á vinnumarkaði.

Möguleikar á starfsstöð eru í Reykjavík, á Akureyri eða Egilsstöðum

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur
Haldbær reynsla af tengdum störfum á vinnumarkaði
Þekking á íslenskum vinnumarkaði
Árangursrík reynsla af stjórnun verkefna
Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri.
Framúrskarandi samskiptahæfni og reynsla af því að vinna með fjölbreyttum hópi hagsmunaaðila.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Mjög góð íslensku og enskukunnátta í máli og riti
Þekking og/eða reynsla af fjölmenningu æskileg
Vammleysi svo sem að framkoma á vinnustað og utan hans samrýmist verkefninu
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiða þróun og uppsetningu á nýrri vefsíðu fyrir félagslegt vinnuumhverfi
Þróa árangursríkar leiðir til forvarna til að styðja við heilbrigða fyrirtækjamenningu
Hanna gagnvirk greiningartæki og fræðsluefni til stuðnings við félagslegt áhættumat
Halda utan um samstarfsverkefni og samráðshópa tengda verkefninu
Ritstýra útgáfu og uppfærslu efnis á vefsíðu í samráði við fagaðila og ritstjórn.
Kynningarmál
Auglýsing birt14. september 2021
Umsóknarfrestur30. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skipagata 14, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar