RST Net
RST Net
RST Net

Vélfræðingur / Verkstjóri í VERTO

Við hjá RST Net leitum að öflugum einstaklingi með vélfræðimenntun til að taka að sér verkstjórastöðu á verkstæði okkar, VERTO.

VERTO dreifispennar

VERTO framleiðir dreifispenna í ýmsum stærðum. Framleiðslan felur í sér samsetningu á stáli, þar á meðal suðu og almenna stálvinnu, auk samsetningar á íhlutum eins og kjarna, há- og lágspennugegnumtökum, rofum og öðrum tengdum íhlutum. Einnig eru gerðar mælingar til að tryggja gæði vörunnar.

VERTO smíði

VERTO er einnig smíðaverkstæði þar sem unnið er með alls kyns stál- og vélaverkefni sem hönnuð eru innanhúss og smíðuð á staðnum. Við vinnum aðallega með svart stál, en stundum einnig með ryðfrítt stál og ál. Verkstæðið er vel útbúið með tilheyrandi vélum og búnaði, þar á meðal suðuróbóta.

Áhugasömum af öllum kynjum er bent á að sækja um hér á Alfred.is eða á www.rst.is undir Starfsumsóknir.

Helstu verkefni og ábyrgð

Við leitum að einstaklingi til að taka að sér umsjón og verkefni tengd VERTO. Um er að ræða verkstjórastöðu með verklegum áherslum. Einstaklingurinn mun vinna í nánu samstarfi við framleiðslustjóra, útdeila verkefnum og hafa yfirsýn yfir verkflæði á verkstað.

Verið er að vinna að því að byggja upp starfsemina með auknum verkefnum og fleiri starfsmönnum og mun viðkomandi einnig koma að þeirri þróun.

Önnur verkefni

  • Upptektir á ýmsum rafvélum.
  • Aðstoð við aðrar deildir fyrirtækisins, svo sem Þjónustudeild, Framkvæmdardeild, Orkuskiptadeild og útibú okkar í Vestmannaeyjum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Vélfræðimenntun eða sambærileg menntun
  • Reynsla af verkstjórn og mannaforráði
  • Reynsla af stálvinnu og suðu
  • Þekking á framleiðsluferlum og gæðastjórnun
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
Fríðindi í starfi

Öflugt starfsmannafélag

Góð vinnuaðstaða

Líkamsræktarstyrkur

Hleðslustöðvar fyrir starfsfólk

Auglýsing birt7. janúar 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Álfhella 6, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar