
HS Orka
HS Orka er framsækið og ört vaxandi orkufyrirtæki sem byggir á sjálfbærri nýtingu auðlinda. Nýsköpun hefur ávallt verið hluti af kjarnastarfsemi HS Orku og er uppbygging Auðlindagarðsins þar í fyrirrúmi. Áhersla er lögð á að skapa tækifæri með fullnýtingu auðlindastrauma í takti við náttúruna og í sátt við samfélagið. Við erum í fararbroddi í orkuskiptum hér á landi og höfum sett okkur skýr og ábyrg markmið í loftslagsmálum.
Spennandi þróunarverkefni eru í undirbúningi á vegum fyrirtækisins, jafnt í jarðvarma sem vatnsafli, auk þess sem kostir vindorku eru til skoðunar til lengri tíma. Við erum þriðji stærsti orkuframleiðandi landsins og framleiðum raforku í Svartsengisvirkjun, Reykjanesvirkjun, Brúarvirkjun, Fjarðarárvirkjunum og Múlavirkjun. Einnig seljum við heitt og kalt vatn til heimila og fyrirtækja á Suðurnesjum, auk annarra auðlindastrauma í Auðlindagarðinum. Við miðlum líka raforku frá fjölda sjálfstæðra orkuframleiðenda vítt og breytt um landið.
Við erum ótrúlega skemmtilegur hópur starfsfólks sem störfum í sveigjanlegu og fjölskylduvænu vinnuumhverfi þar sem heilbrigði, hollusta og vellíðan eru í öndvegi. Kaffið okkar er líka frábært! Mikil áhersla er lögð á lipurð í samskiptum, liðsheild og framsækni. Þannig náum við best markmiðum okkar um ábyrga auðlindanýtingu í sátt við samfélagið.
Við erum stærsta orkufyrirtæki landsins í einkaeigu. Eignarhaldið skiptist að jöfnu milli Jarðvarma, sem er samlagshlutafélag í eigu þrettán íslenskra lífeyrissjóða, og sjóða í stýringu Ancala, sjóðastýringafélags með höfuðstöðvar í Bretlandi.

Vélfræðingur í vaktarteymi
Við leitum að öflugum vélfræðing í vaktarteymi í framleiðslustýringu. Vaktarkerfið er blandað vakt og dagvinnuvikum.
Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, frumkvæði og sjálfstæði ásamt góðri umgengni.
Erum við að leita að þér?
Nánari upplýsingar veitir Petra Lind Einarsdóttir, mannauðsstjóri [email protected].
Menntunar- og hæfniskröfur
Vélfræðingur 4. stig
Rafvirkjamenntun mikill kostur
Reynsla af sambærilegum störfum krafa
Helstu verkefni og ábyrgð
Framleiðsluvöktun og -stýring
Viðhald og eftirlit búnaðar
Uppbygging og rekstur á viðhaldskerfi og kerfisráð orkuveranna
Auglýsing birt2. maí 2022
Umsóknarfrestur15. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Orkubraut 3, 240 Grindavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Rafvirkjar í tímabundið starf
Rafal ehf.

Uppsetningar
Titus

Orkubú Vestfjarða - Ísafjörður - Vélfræðingur
Orkubú Vestfjarða ohf

Móttaka á verkstæði
Aflvélar ehf.

Öryggisstjóri (HSE Manager)
atNorth

Sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum (Control SME)
atNorth

Skipuleggjandi viðhaldsverkefna
Rio Tinto á Íslandi

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka

Verkstæði
EAK ehf.

Söluráðgjafi óskast í S.Guðjónsson
S. Guðjónsson

General Maintenance Engineer
The Reykjavik EDITION

Rafvirki
Hitatækni ehf