Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Velferðarsvið - Félagsráðgjafi - Sérfræðingur í Barnavernd

Reykjanesbæjar leitar eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingum til að ganga til liðs við barnaverndarteymi velferðarsviðs. Reykjanesbær leggur áherslu á réttindi barna og barnvænt sveitarfélag og að allir sem vinni með börnum þurfi að vera tilbúnir til að veita börnum og fjölskyldum þeirra framúrskarandi þjónustu.

Starfið felur í sér verkefni á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80/2002, vinnu í þágu farsældar barna skv. l.nr. 86/2021, teymisvinnu og þverfaglegt samstarf við aðra sérfræðinga sem koma að málum barna og fjölskyldna.

Reykjanesbær er fjölskylduvænn og framsækinn vinnustaður sem bíður upp á spennandi tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu þjónustu og þverfaglegt samstarf með metnaðarfullum hópi fagmanna.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka barnaverndartilkynninga, skráning þeirra og könnun mála
  • Vinnsla barnaverndarmála
  • Vinnsla fósturmála
  • Ráðgjöf og stuðningur til barna og foreldra
  • Teymisvinna og þverfaglegt samstarf við helstu samstarfsaðila barnaverndar
  • Virk þátttaka í uppbyggingu og þróun barnaverndarstarfs hjá sveitarfélaginu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Félagsráðgjafanám til starfsréttinda. Til greina kemur að ráða sérfræðinga með aðra menntun sem nýtist í starfi.
  • Viðbótarmenntun á sviði barnaverndar og farsældar barna æskileg
  • Starfsreynsla í barnavernd er æskileg
  • Reynsla af teymisvinnu og þverfaglegu samstarfi er æskileg
  • Jákvætt hugarfar, lausnamiðað viðhorf, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Rík þjónustulund og metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði. Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Geta til að vinna undir álagi er mikilvæg
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög 
Fríðindi í starfi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Auglýsing birt3. mars 2026
Umsóknarfrestur17. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Tjarnargata 12, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FélagsráðgjafiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar