heilsuleikskólinn Urriðaból II
heilsuleikskólinn Urriðaból II
heilsuleikskólinn Urriðaból II

Deildarstjóri

Leikskólinn Urriðaból 2 er staðsettur í Urriðaholti í Garðabæ. Skólinn opnaði í mars 2023 og er nýju svansvottuðu húsnæði þar sem hljóðvist og rými eru til fyrirmyndar. Hér erum við í uppbyggingu á nýjum skóla sem byggir þó á gömlum grunni en leikskólinn er rekinn af Skólar ehf. er um 25 ára gamalt félag sem rekur nú þegar heilsuleikskóla í sveitarfélögunum Garðabæ, Kópavogi, Reykjanesbæ og Reykjavík.

Við erum leikskóli á heilsubraut en við erum að innleiða Heilsustefnuna í skólann.
Allir leikskólarnir innan vébanda Skóla ehf. starfa í anda Heilsustefnunnar sem kjarnast um heilsu og lífsgæði nemenda, starfsfólks og nærsamfélagsins.

Einkunnarorð okkar er „heilbrigð sál í hraustum líkama“

Hér erum við að leggja áherslu á að fjölga fagfólki og skapa traust og gott starfsumhverfi þar sem sameiginleg sýn okkar allra skiptir máli.

Deildarstjóri óskast til starfa sem fyrst eða eftir samkomulagi, í heilsuleikskólann Urriðaból II, Holtsveg 20 í Garðabæ.

Við erum að leita að metnaðarfullum leikskólakennara sem vill taka að sér að vera deildarstjóri í flottum starfsmannahóp sem er að móta starfið í nýlegum skóla.

Allar upplýsingar veitir Jónína Einarsdóttir leikskólastjóri [email protected] eða í síma 617-8991 og Elsa María Gunnarsdóttir [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að og ber ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga
  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og að öll börn fái kennslu og umönnun við hæfi
  • Ber ábyrgð á foreldrasamvinnu
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Gerð er krafa um reynslu af leikskólastarfi
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
  • Vilji til að taka þátt í þróun á faglegu starfi og láta til sín taka
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Lausnarmiðun
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Metnaðarfullt starfsumhverfi
  • Viðverustefna
  • 3 heilsusamlegar máltíðir á dag
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsuhvetjandi starfsumhverfi
Auglýsing birt2. mars 2026
Umsóknarfrestur17. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Holtsveg 20, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar