
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru tæplega 110 nemendur. Skólinn er hluti af Skólamiðstöð þar sem náin samvinna er við leikskóla, tónlistarskóla og bókasafn. Nóg er af lausu húsnæði á Fáskrúðsfirði og í sveitarfélaginu. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu á öllum sviðum skólastarfsins og sameiginlegri ábyrgð í starfi, ekki síst í stjórnendateymi, umsjónarkennarateymum og lausnarteymi skólans.
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er mikil áhersla lögð á velferð nemenda og starfsfólks og litið svo á að hún sé lykillinn að árangri í öllum verkefnum. Unnið er í anda leiðsagnarnáms og byrjendalæsis. Unnið er eftir metnaðarfullri áætlun gegn einelti og lögð er áhersla á ART kennslu. Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn barna og unglinga. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Kjörorð skólans eru ,,ánægja, ábyrgð, árangur".

Aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Staða aðstoðarskólastjóra við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er laus til umsóknar.
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru um 100 nemendur. Skólinn starfar í Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar undir sama þaki og leikskóli, tónlistarskóli og bókasafn. Í skólastarfinu er unnið með byrjendalæsi, að innleiðingu leiðsagnarnáms, innleiðingu uppfærðrar aðalnámskrár og samvinna er um innra mat og gæðastarf í grunnskólum Fjarðabyggðar.
Í skólastarfinu er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART. Kjörorð skólans eru "ánægja, ábyrgð, árangur".
Skólinn er einn af fimm grunnskólum Fjarðabyggðar sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi í Fjarðabyggð.
Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoð við stjórnun og daglegan rekstur skólans.
- Aðstoð við skipulag skólastarfs og stuðningur við starfsfólk.
- Þátttaka í stefnumótun og þróun skólastarfs.
- Samskipti við nemendur og foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu.
- Menntun í stjórnun er æskileg.
- Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er æskileg.
- Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði.
Auglýsing birt25. febrúar 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hlíðargata 56, 750 Fáskrúðsfjörður
Starfstegund
Hæfni
DrifkrafturFagmennskaFrumkvæðiJákvæðniKennslaSamviskusemiTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Kennari óskast á miðstig í Snælandsskóla
Snælandsskóli

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Garðabæ, Vífilsstöðum - Umsjónarkennsla á yngsta stigi
Hjallastefnan

Vegna forfalla óskast kennarar til starfa við Djúpavogsskóla
Djúpavogsskóli

Verkefnastjóri gervigreindarmála (AI Coordinator)
Háskólinn í Reykjavík

Mýrarhúsaskóli auglýsir þrjár stöður.
Seltjarnarnesbær

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Garðasel

Leikskólinn Naustatjörn: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Akureyri

Umsjónarkennari á yngsta stigi – Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennarar óskast
Kópasteinn

Ísat kennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær