

Umsjónarkennari á yngsta stigi í Álfhólsskóla 2026-2027
Við í Álfhólsskóla leitum að skapandi, faglegum og áhugasömum kennara í umsjón og kennslu á yngsta stigi fyrir skólaárið 2025-2026.
Í Álfhólsskóla eru um 560 nemendur í 1.-10. bekk og um 120 starfsmenn. Skólinn byggir á langri sögu um framsækið og árangursríkt skólastarf. Starfið einkennist af fjölbreyttum kennsluháttum, áherslu á læsi, teymiskennslu og leiðsagnarnám. Allir nemendur skólans eru með spjaldtölvur. Álfhólsskóli er fjölmenningarlegur skóli sem leggur áherslu á inngildingu allra nemenda. Í skólanum eru starfrækt námsver fyrir nemendur með einhverfu. Álfhólsskóli er réttindaskóli Unicef. Skólinn hefur mótað eigin skólamenningaráætlun ,,Öll sem eitt". Skólinn er jafnframt Grænfánaskóli og Heilsueflandi skóli.
Einkunnarorð skólans eru : menntun - sjálfstæði - ánægja.
Umsjón og kennsla þar sem áhersla er lögð á þematengt verkefnamiðað leiðsagnarnám.
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu
- Reynsla af umsjónarkennslu á yngstastigi æskileg
- Þekking og reynsla á teymiskennslu æskileg
- Þekking og áhugi á kennslu- og uppeldisfræði
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Mjög góð þekking á Mentor, upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
Allt starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund.
Íslenska










