Leikskólinn Hlíð
Leikskólinn Hlíð

Leikskólakennari /leikskólaliði óskast í leikskólann Hlíð

Viltu vera hluti af þéttum og skemmtilegum starfsmannahóp, okkur vantar leikskólakennara /leikskólaliða til starfa í leikskólann Hlíð.

Leikskólinn Hlíð er eins og er 2 deilda leikskóli í Eskihlíð 17. En er hluti af stærri leikskóla sem er í framkvæmdum og mun því leikskólinn stækka upp í 6 deilda skóla vorið 2027. Leikskólinn Hlíð er lítill og notalegur leikskóli á besta stað í bænum, stutt í útivistarperlur á borð við Öskjuhlíð og Klambratún. Í leikskólanum eru börn frá aldrinum 1-6 ára á tveim deildum. Unnið er markvisst með samskipti og frjálsan leik barna.

Einkunnarorð leikskólans og leiðarljós í starfi eru: Virðing - Vinátta - Vellíðan.

Starfið er laust nú þegar, eða eftir samkomulagi.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara, og eða önnur uppeldismenntun æskileg.
  • Góð íslenskukunnátta algjört skilyrði. íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
  • Reynsla af kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
  • Frítt í sund í allar sundlaugar í Reykjavík
  • Íþróttastyrkur eftir 6 mánuði í starfi
  • Frítt á söfn í Reykjavík og Borgarbókasafnið
  • Boðið er upp á heitan mat í hádeginu, morgunmat og síðdegishressingu.
Auglýsing birt3. mars 2026
Umsóknarfrestur22. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Eskihlíð 17, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar