Lágafellsskóli
Lágafellsskóli
Lágafellsskóli

Frístundaleiðbeinandi í Lágafellsskóla

Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf með börnum í 1.-4.bekk.

Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi? Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?

Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar.

Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik og starfi í samvinnu við samstarfsfólk. Vinnutími er kl 13:10-16:00/16:30 virka daga.
Um hlutastarf er að ræða en möguleiki er á áframhaldandi starfi. Sumarfrístund er starfrækt 11.-26.júní og 10.-21.ágúst. Vinnutíminn í sumarfrístund er kl 08:00-16:00.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Undirbúningur fyrir starfsemina hverju sinni og tiltekt að henni lokinni
  • Leiðbeina og tryggja þátttöku barnanna í starfi með styrk þeirra að leiðarljósi
  • Ýta undir leik, sköpun og lýðheilsu
  • Vinna gegn andfélagslegri hegðun og skapa öruggt umhverfi
  • Leysa úr ágreiningnum, leiðbeina samræðum barna, ýta undir vinsemd og styðja börnin í að eiga við tilfinningar sínar
  • Skapa lýðræðislegt umhverfi þar sem börnin eiga kost á því að tjá sig og hafa áhrif á starfsemina
  • Stíga inn í fjölbreytt hlutverk eftir þörfum og hæfni
  • Stýra smiðjum, yfirumsjón með valstöðum, fylgja á eftir viðveru og mætingu barna
  • Önnur hlutverk sem styðja við og eða bæta gæði starfsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Samskipta- og samvinnuhæfni
  • Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
  • Sveigjanleiki og hjálpsemi
  • Þolinmæði og umhyggjusemi
  • Hæfni til þess að lesa í aðstæður
  • Tæknilæsi eða vilji til þess að nýta tækni í starfi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Lágmarks aldur 18 ára (eða að verða 18 ára á árinu)
Fríðindi í starfi

Rækt og Lágafellsslaug er við hliðina á Lágafellsskóla. Afsláttur í World class og frítt í sund fyrir starfsmenn. 
Samgöngustyrkur 

Auglýsing birt2. mars 2026
Umsóknarfrestur16. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Lækjarhlíð 1, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar