
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.500 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Kjörorð Fjarðabyggðar er: Þú ert á góðum stað.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.

Starfsfólk óskast í sumarfrístund í Fjarðabyggð
Langar þér að starfa með börnum í Fjarðabyggð í sumar?
Fjarðabyggð óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinendur í sumarfrístund í Fjarðabyggð. Starfið í sumarfrístundinni byggist á útivist, hreyfingu, leikjum og fjöri. Sumarfrístundin er fyrir börn sem voru að ljúka 1. - 4. bekk sumarið 2026. Sumarfrístundin verður opin frá kl. 07:45 til 16:15 frá og með mánudeginum 8. júní til og með föstudagsins 14. ágúst. Lokanir eru misjafnar eftir kjörnum, hver frístund lokar í fjórar vikur í senn, þá taka við önnur verkefni eins og að hjálpa í öðrum frístundum, þrif, frekari undirbúningur og fleira.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gefa börnum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt
úti sem inni. - Leiðbeina börnum í leik og starfi í sumarfrístund.
- Hjálpa börnum í sumarfrístund við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi.
- Aðstoða börn í kaffitímum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi æskileg.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Metnaður og dugnaður.
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur20. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Fjarðabyggð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Stuðningur við börn með sértækan stuðning óskast í sumarfrístund í Fjarðabyggð.
Fjarðabyggð

Leikskólakennari við leikskólann Kærabæ, Fáskrúðsfirði
Leikskólinn Kæribær

Leikskólakennari við Dalborg, Eskifjörður
Leikskólinn Dalborg

Leikur og málörvun - HOLT
Leikskólinn Holt

Óskum eftir leikskólakennara
Álfatún

Arnarskóli - sumarstarfsfólk
Arnarskóli

Leikskólakennari óskast
Helgafellsskóli

Almenn starfsumsókn - Þorláksskóli
Þorláksskóli

Millistjórnandi Jafningjafræðslu Hins Hússins - sumarstarf
Hitt húsið

Sumarstörf á leikskólum Hafnarfjarðarbæjar
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði í Skarðsel - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær