Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Stuðningsaðili barna og ungmenna (liðveisla)

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýsir eftir hressum einstaklingum til að vera stuðningsaðilar fyrir börn/ungmenni og fullorðna í Fjarðabyggð. Markmið stuðningi er að rjúfa félaglega einangrun einstaklings, efla sjálfstæði í félagslegum samskiptum. Einnig að auka frumkvæði til sjálfsbjargar ásamt því að veita persónulegan stuðning og aðstoð. Liðveisla miðar einnig að því að styðja einstaklinginn til að njóta menningar og félagslífs að því marki sem geta hans leyfir.
Um tímavinnu er að ræða.

Menntunar- og hæfniskröfur

•    Viðkomandi þarf að vera orðin 18. ára. 
•    Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er æskileg
•    Hreint sakavottorð
•    Góðir samskiptahæfileikar
•    Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki

Auglýsing birt13. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar