

Stuðningsaðili barna og ungmenna (liðveisla)
Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýsir eftir áhugasömum og metnaðarfullum starfsmönnum til að vera stuðningsaðilar fyrir börn og ungmenni með stuðningsþarfir.
Markmið stuðningsins er að styðja einstaklingana til að njóta menningar og félagslífs ásamt fjölbreyttrar afþreyingar að því marki sem geta þeirra leyfir. Ennfremur að veita persónulegan stuðning og aðstoð. Um tímavinnu er að ræða.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir, stjórnandi félagsþjónustu í gegnum netfangið [email protected] eða í gegnum síma: 470-9000.
- Starfsmaður sér um umönnun þjónustunotenda vegna líkamlegra, andlegra og félagslegra þarfa eftir því sem við á.
- Veitir þjónustunotendum persónulegan stuðning við athafnir daglegs lífs sem sniðinn er að þörfum, aldri, óskum og væntingum hvers og eins.
- Kappkostar að eiga gott samstarf og samskipti við þjónustunotendur, fjölskyldur þeirra og aðra samstarfsaðila.
- Viðkomandi þarf að vera orðin 18. ára.
- Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er æskileg
- Hreint sakavottorð
- Góðir samskiptahæfileikar
- Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki
Íslenska
Enska