

Leikskólakennari við Dalborg, Eskifjörður
Dalborg er 50 nemenda skóli sem skiptist á 4 deildar. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Dalborg vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Um er að ræða tímabundna 100% stöðu með möguleika á framtíðarstarfi, sem við hvetjum öll kyn til að sækja um. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
Allar frekari upplýsingar veitir Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, leikskólastjóri í síma 476-1341 eða á [email protected]
-
Vinnur undir stjórn deildarstjóra að uppeldi og menntun barnanna.
-
Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar.
-
Situr starfsmannafundi, deildarfundi og aðra fundi er leikskólastjóri segir til um og varða starfsemi leikskólans.
-
Samstarf við foreldra/forráðamenn barna á leikskólanum.
-
Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
-
Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
-
Frumkvæði og faglegur metnaður
-
Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
-
Reynsla af starfi með börnum æskileg
-
Ábyrgð og stundvísi
-
Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Greitt er 50.000 kr. álag fyrir að matast með börnunum og unnið er eftir kjörum um styttingu vinnuvikunnar.
Íslenska










